Ríkið gæti skapað sér bótaskyldu 6. mars 2010 05:30 Gylfi Magnússon Félag íslenkra bifreiðaeigenda hefur kallað eftir úrlausn stjórnvalda vegna bílalána. Viðskiptaráðherra segir að bíða verði eftir Hæstarétti. Fréttablaðið/Vilhelm
Stjórnvöld verða, líkt og aðrir, að bíða niðurstöðu Hæstaréttar um lögmæti gengisbundinna lána, að sögn Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. „Það er eitthvað hægt að liðka fyrir niðurstöðu, en það er ekkert til sem heitir flýtimeðferð fyrir Hæstarétti," segir hann og kveður því svigrúm til að flýta niðurstöðu afar takmarkað. „Erfitt er að sjá að nokkur leið sé til þess að löggjafar- eða framkvæmdarvaldið stökkvi fram fyrir og grípi í raun fram fyrir hendurnar á dómstólum sem eiga að skera úr um réttaróvissu. Það væri varla til bóta og gæti búið til hættu á því að ríkisvaldið lenti með þetta allt í fanginu og þyrfti að greiða háar fjárhæðir í bætur ef það tæki rétt annaðhvort af þeim sem hafa tekið eða hafa veitt slík lán." Gylfi bendir á að á meðan niðurstöðu sé beðið geti fólk nýtt sér þau úrræði sem standi til boða og eiga að lækka greiðslubyrði lána sem tekin voru í erlendri mynt. „Og fara kannski í sumum tilfellum mjög nærri því að gera hana svipaða og yrði ef dómur fellur þannig að hann geri þessi lán ólögmæt." Gylfi segir svo annan handlegg hvort stjórnvöld verði tilbúin með leiðir til úrlausnar eftir því hver niðurstaða Hæstaréttar verður, að svo miklu leyti sem það standi upp á löggjafar- eða framkvæmdarvaldið. „Það er vitaskuld hægt að skoða þau mál." - óká
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Fleiri fréttir Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Sjá meira