Saksóknari í deilu við dómarann 6. mars 2010 06:00 Enn ríkir réttaróvissa um hvar skuli rannsaka brot gegn lögreglumönnum í starfi.
Hæstiréttur mun á næstunni eyða óvissu um það hvort eðlilegt sé að brot gegn lögreglumönnum séu rannsökuð af samstarfsmönnum þeirra hjá sama embætti. Hæstiréttur hefur kveðið upp fjóra misvísandi dóma um þetta atriði og fór ríkissaksóknari vegna þess fram á að fimm manna dómur myndi dæma í enn einu slíku máli til að fyrir liggi skýr afstaða réttarins í eitt skipti fyrir öll. Héraðsdómur Suðurlands vísaði á fimmtudag frá máli sem höfðað hafði verið fyrir brot gegn valdstjórninni. Ástæðan var sú að dómurinn taldi að sýslumaðurinn á Selfossi hefði verið vanhæfur til að fara með rannsóknina vegna þess að lögreglukonan sem varð fyrir árásinni starfar í umdæmi hans og samstarfsmenn hennar rannsökuðu málið. Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari kærði þessa ákvörðun til Hæstaréttar. Hann hafði áður farið fram á að dómarinn myndi bíða með ákvörðun sína þar til fimm manna dómur Hæstaréttar hefði kveðið upp sinn dóm. Ágreiningurinn um hvort rannsaka megi brot gegn lögreglumanni í því umdæmi þar sem hann starfar eða hvort rannsókn skuli fara fram í öðru umdæmi er sprottinn af fjórum misvísandi dómum Hæstaréttar, eins og Fréttablaðið hefur fjallað um. Tveimur málum af fjórum þar sem lögreglumenn rannsökuðu brot gegn samstarfsmanni sínum hefur Hæstiréttur nýlega vísað frá, en dæmt í hinum tveimur. Við þingfestingu málsins sem vísað var frá á fimmtudaginn kom til ágreinings milli ríkissaksóknara og verjanda sakbornings. Verjandi vildi, á grundvelli frávísananna tveggja í Hæstarétti, vísa málinu frá. Ríkissaksóknari vildi, á grundvelli hinna tveggja dómanna, að málið hlyti efnislega meðferð í dóminum. Að öðrum kosti yrði því frestað. Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segist hafa kært frávísunina til Hæstaréttar til þess að fá héraðsdómarana til þess að taka málið fyrir efnislega og dæma í því. „Dómarinn neitaði að fresta því þar til Hæstiréttur hefur fellt sinn dóm í maí. Frestunin sem slík er ekki kæranleg, þannig að það þurfti að fara þá leið að gera kröfu um að úrskurðurinn yrði ómerktur og jafnframt að fimm dómarar sitji í Hæstarétti í þessu máli einnig,“ segir Valtýr. jss@frettabladid.is
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Erlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Fleiri fréttir Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Hvernig munu dýr bregðast við myrkvanum þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Sjá meira