Kosið um virkjun í Flóahreppi í vor 6. mars 2010 05:00 Tæplega 400 kosningabærir íbúar í Flóahreppi munu að einhverju leyti kjósa í sveitarstjórnarkosningum í vor eftir afstöðu þeirra til fyrirhugaðrar virkjunar Landsvirkjunar við Urriðafoss í Þjórsá.Fréttablaðið/Anton
Líklegt þykir að stuðningur sitjandi sveitarstjórnar við fyrirhugaða Urriðafossvirkjun í Þjórsá verði stærsta kosningamálið í sveitarstjórnarkosningum í Flóahreppi í vor, enda verður virkjunin vart komin á aðalskipulag fyrir kosningar. „Það stefnir í að það verði óbeint kosið um þetta mál,“ segir Almar Sigurðsson, bóndi á Lambastöðum, og einn aðstandenda nýs framboðs sem nú er í burðarliðnum. Ekki er enn ljóst hvort hópurinn sem stendur að framboðinu nær að setja fram lista fyrir kosningarnar, en Almar segir það líklega skýrast á fundi í næstu viku. Nýju aðalskipulagi Flóahrepps, þar sem gert var ráð fyrir Urriðafossvirkjun, var nýverið hafnað af Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, þar sem Landsvirkjun hafði greitt kostnað vegna skipulagsins. Það þýðir að leggja þarf í vinnu við nýtt skipulag, sem afar hæpið er að takist að klára fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Það mun því koma í hlut nýrrar sveitarstjórnar að ákveða endanlega hvort virkjunin kemst á aðalskipulagið eða ekki. „Eins og þessi mál liggja við mér ætlaði sveitarstjórnin að þvinga virkjunina í gegnum kerfið gegn vilja íbúa,“ segir Almar. Í ljós hafi komið strax árið 2007 að meirihluti kjósenda í hreppnum sé andvígur virkjuninni. Því sé sveitarstjórnin að vinna gegn vilja meirihluta íbúa sveitarfélagsins. „Það eru töluverðar líkur á að þetta verði eitt af kosningamálunum,“ segir Aðalsteinn Sveinsson, oddviti hreppstjórnar Flóahrepps. Vonandi verði þetta þó ekki eina málið sem verði rætt fyrir kosningarnar, enda snúist rekstur sveitarfélagsins um allt önnur mál. Rúmlega 400 manns eru á kjörskrá fyrir kosningarnar, og segir Aðalsteinn það vissulega orka tvímælis að svo lítill hópur taki ákvörðun um svo stórt mál fyrir íslenskt samfélag. Þannig séu þó lögin, og eftir þeim verði að fara. Valdimar Guðjónsson, oddviti Flóalista, segir línurnar ekki farnar að skýrast fyrir kosningarnar í vor, en þó sé ljóst að hann muni sjálfur stíga til hliðar eftir 20 ár í sveitarstjórnarpólitíkinni. Hann segir erfitt að átta sig á því hvaða áhrif andstaða við virkjunina muni hafa, þó að sennilega verði hún kosningamál. Andstaða við virkjunina árið 2007 segi ekki alla söguna í dag, því líklegt sé að ýmsir sem áður hafi verið andsnúnir virkjuninni hafi nú skipt um skoðun.brjann@frettabladid.is
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Fleiri fréttir Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Sjá meira