Stórt skref stigið í réttlætisátt 6. mars 2010 01:30 Árni Stefánsson „
Ég hef tekið af öll tvímæli með nýrri reglugerð að þessi hópur á rétt á 95 prósenta endurgreiðslu frá ríkinu,“ segir Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra sem undirritaði í gær nýja reglugerð um aukna þátttöku sjúkratrygginga í nauðsynlegum tannlækninga- og tannréttingakostnaði vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma eða slysa. Kostnaður vegna ákvörðunarinnar er áætlaður um 140 milljónir króna í ár. Gamla fyrirkomulagið fól í sér að greitt var hlutfall af gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands sem ekki hefur verið uppfærð í samræmi við verðlagsbreytingar. Því var breytt með reglugerð um síðustu áramót en hún þótti misheppnuð að mati aðstandenda og tannlækna. „Þetta er klárlega stórt skref í réttarbótum og virðingarverð lagfæring,“ segir Árni Stefánsson, stjórnarmaður í Breiðum brosum, samtökum aðstandenda barna með skarð í vör eða gómi. Árni vildi þó hafa allan vara á þar til hann hefur skoðað reglugerðina en ákvæði hennar munu gilda fyrir hópinn frá 1. janúar síðastliðnum. „Við höfum auðvitað barist fyrir fullri endurgreiðslu en 95 prósent er mjög gott.“ Árlega fæðast um ellefu börn með skarð í vör eða góm en auk þeirra nær reglugerðin til þeirra sem vantar í tennur vegna fæðingargalla eða lenda í slysi sem tryggingar ná ekki yfir, alls um 80 manns á ári hverju. - sbt
Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Sérsveitin handtók mann í Garðabæ Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Fleiri fréttir Tengist ekki skuggaflota Rússlands: Óskar eftir undanþágu vegna viðskiptaþvingana Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Sjá meira