Innlent

Ölvaður á ofsahraða

Mynd/Anton Brink
Ökumaður um tvítugt var stöðvaður á Sæbraut á 130 kílómetra hraða í nótt en þar er hámarkshraði 60. Þar af auki var hann ölvaður og því handtekinn. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða á staðnum vegna hraðabrotsins og á yfir höfði sér mögulega þyngingu, hið minnsta hærri sekt vegna ölvunarþáttarins.

Nokkur erill var í miðbæ höfuðborgarinnar í nótt. Einnig var þónokkuð að gera víðsvegar um borgina og gistu sex fangageymslur í nótt, að sögn varðstjóra.

Tveir karlmenn um þrítugt voru stöðvaðir í austurborginni grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þeir eiga yfir höfði sér mögulega sviptingu auk hárrar fjársektar. Annar þeirra var auk þess með lítilræði af fíkniefnum á sér.

Þá var karlmaður var sleginn í höfuð með glerflösku á skemmtistað í miðborginni og hlaut stóran skurð á höfuð.

Utan höfuðborgarinnar virðist nóttin hafa verið afar rólegt hjá lögreglumönnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×