Greiðslur til borgarfulltrúa lækkaðar 7. janúar 2010 12:17
Starfskostnaðargreiðslur til borgarfulltrúa lækkuðu um áramótin um níu prósent. Þá munu fyrstu varaborgarfulltrúar á næsta kjörtímabili hætta að fá föst laun sem hlutfall af launum borgarfulltrúa og munu í staðinn fá greidd laun fyrir störf sín í nefndum eftir sömu reglum og aðrir en borgarfulltrúar sem starfa í stjórnsýslu borgarinnar. Laun borgarfulltrúa og annarra kjörinn fulltrúa hjá Reykjavíkurborg eru ákveðið hlutfall af þingfararkaupi alþingismanna eins og það er hverju sinni, en það er í samræmi við samþykkt forsætisnefndar borgarinnar. Þannig að þegar laun alþingmanna breytast breytast laun kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg í sama hlutfalli. Hinn 29. janúar á síðasta ári lækkuðu laun borgarfulltrúa um tíu prósent í samræmi við launalækkun hjá þingmönnum. Hinn 11. desember síðastliðinn gerði forsætisnefnd Reykjavíkurborgar breytingar á samþykktinni sem fela í sér að fyrstu varaborgarfulltrúar munu frá og með næsta kjörtímabili, sem miðast við mitt þetta ár, hætta að þiggja föst laun sem hlutfall af launum borgarfulltrúa og munu þess í stað taka laun eftir sömu reglum og aðrir en kjörnir borgarfulltrúar. Þar með munu fyrstu varaborgarfulltrúar fá greidd laun fyrir nefndarsetu og önnur störf sem þeir taka að sér. Með þessari breytingu verða fyrstu varaborgarfulltrúar fyrir töluverðri kjaraskerðingu en í staðinn greiðast laun þeirra í samræmi við störf þeirra og framlag til stjórnsýslu borgarinnar. Á mannamáli mætti segja að fyrstu varaborgarfulltrúar verði ekki lengur áskrifendur að laununum sínum. Þá hefur forsætisnefnd borgarinnar tekið þá ákvörðun að lækka greiddan farsímakostnað borgarfulltrúa lítillega. Til þessa hefur borgin greitt gsm-kostnað borgarfulltrúa að 25 þúsund krónum á mánuði. Þetta hefur verið lækkað niður í 20 þúsund krónur á mánuði. Miðað við meðalverð hjá farsímafyrirtækjunum eru þetta rúmlega 1.400 mínútur á mánuði eða tvö þúsund sms-skilaboð á mánuði sem skattgreiðendur í Reykjavíkurborg greiða fyrir hjá hverjum borgarfulltrúa.
Mest lesið „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Erlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir „Ég get ekki orða bundist“ Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Bein útsending: Málstofa og sýning um íslensk námsgögn Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Gott að vera temmilega tortrygginn Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Sjá meira