Steingrímur útilokar ekki nýjar samningaviðræður Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. janúar 2010 13:20 Steingrímur J. Sigfússon segir að unnið sé að því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann útilokar þó ekkert. Mynd/ Anton.
Steingrímur J. Sigfússon útilokar ekki nýjar samningaviðræður með Bretum og Hollendingum um Icesave. Nú sé ríkisstjórnin hins vegar að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hvatti til þess í grein í Fréttablaðinu í dag að ný samninganefnd yrði skipuð. „Það sem er verið að gera núna er að það er verið að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekna niðurstöðú í málinu og það er auðvitað ekkert í neinu plati," segir Steingrímur. Þeir sem biðji um eitthvað annað verði að útskýra hvort þeir séu að biðja um að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram eða ekki. Steingrímur bendir á að í milliríkjadeilu þurfi báðir aðilar að samþykkja samningaviðræður. „Menn yrðu fyrst að þreifa fyrir sér hvort slíkt yrði í boði af hálfu gagnaðilanna. Ég er ekki viss um að það sé litið þannig á að hálfu Breta og Hollendinga," segir Steingrímur. Þeir telji ef til vill frekar að þörf sé á þvi að þeir samningar sem gerðir hafi verið séu kláraðir. „Með þessu er ég þó ekki að segja að við höfnum einhverjum möguleika. Formleg staða er þó þessi að það er að hefjast undirbúningur þjóðaratkvæðagreiðslu og það eru engin efni til að gefa undir fótinn með annað að svo stöddu en að hún fari fram," segir Steingrímur. Aðspurður um þau samtöl sem íslensk stjórnvöld hafi þegar átt við fulltrúa Breta og Hollendinga eftir að forsetinn synjaði lögunum staðfestingar segir Steingrímur að þau hafi verið til að lægja öldur. „Og reyna að tryggja að deilan vindi ekki upp á sig og reyna að leiðrétta misskilning sem fór sumpart í loftið," segir Steingrímur. Steingrímur heldur til Noregs og Danmerkur í dag og mun tala við fjármálaráðherra þar og aðra ráðherra.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja dómnum til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu Sjá meira