Erlendu ríkin vilja aðstoða 7. janúar 2010 06:00 Finnski bankasérfræðingurinn Kaarlo Jännäri kynnti niðurstöður sínar um hvernig best væri að haga endurreisn íslenska bankakerfisins á blaðamannafundi í Reykjavík í lok mars 2009. Fréttablaðið/Pjetur
Íslendingar ættu að greiða atkvæði með lögum þeim um ríkisábyrgð á Icesave sem forsetinn hefur vísað til þjóðarinnar. Þetta er mat Kaarlos Jännäris, finnska bankasérfræðingsins og fyrrverandi forstjóra finnska fjármálaeftirlitsins, sem stjórnvöld réðu sem ráðgjafa við endurskipulagningu bankakerfisins hér. Jännäri segir alvarleika ákvörðunar forsetans þegar hafa endurspeglast í niðurfærslu matsfyrirtækisins Fitch á lánshæfi ríkisins. „Standard & Poor's hafa líka sett ykkur á athugunarlista og flest þau ríki sem lofað hafa fjármögnun í tengslum við áætlun ríkisins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verða lítt hrifin af þróun mála og fjár ekki að vænta fyrr en leyst hefur verið úr Icesave-deilunni með hætti sem Bretland, Holland og Evrópusambandið fá sætt sig við," segir hann. Um leið kveðst Jännäri skilja reiði þjóðarinnar yfir þeirri stöðu sem hún er í. Á hinn bóginn séu reglur um innlánstryggingar ein af grunnstoðum hins evrópska fjármálakerfis. „Íslendingar eru bundnir af lögum Evrópusambandsins með aðild sinni að Evrópska efnahagssvæðinu og þurfa að haga málum sínum í samræmi við þær reglur." Hann segir ljóst að ef eignir tryggingasjóðs dugi ekki til þá þurfi ríkið að hlaupa undir bagga. „Og nú hafa ríkisstjórnir Hollands og Bretlands greitt þessar inneignir sem tryggingarsjóður ykkar skuldar og ríkisstjórn Íslands ábyrgist," segir Jännäri og kveðst sjálfur hafa farið yfir muninn á nýju lögunum og þeim sem samþykkt voru í ágúst. „Og ég get vel séð af hverju Bretar og Hollendingar geta ekki sætt sig við fyrirvarana sem þá voru settir. Gömlu lögin nægja því ekki." Kaarlo Jännäri segist eiga hér marga góða vini og vilja styðja Íslendinga í raunum þeirra. „En því miður virðast margir hafa misskilið stöðuna sem landið er í. Sumir virðast nú reiðir erlendu ríkjunum, sem þó eru að reyna að hjálpa Íslendingum." Sem dæmi nefnir Jännäri að vegna fjárlagahalla heima fyrir hafi Finnland neyðst til að taka 30 milljarða evra (5.400 milljarða íslenskra króna) að láni. „Samt eru Finnar að lána Íslendingum peninga. Og það sama gildir um mörg önnur lönd sem glíma við vandamál heima fyrir. Ég held að komið hafi verið fram við ykkur af mikilli vinsemd, en þjóðin virðist ekki hafa áttað sig á því." Jännäri segir sér virðast sem íslenskum stjórnvöldum hafi mistekist að skýra stöðu landsins fyrir þjóðinni. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira