Hvað gerist ef Portsmouth verður hent úr úrvalsdeildinni? Arnar Björnsson skrifar 12. febrúar 2010 15:15
Enska fótboltaliðið Portsmouth, sem landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson spilar með, fékk í gær frest fram í næstu viku til þess að greiða um 12 milljóna punda skattaskuld. Takist félaginu ekki að greiða skuldina verður félagið lýst gjaldþrota og því vísað úr úrvalsdeildinni. Úrslit leikja Portsmouth í vetur verða þá þurrkuð út og þá breytist stigataflan. Portsmouth tapaði báðum leikjunum við Manchester United og Arsenal og þau lið myndu tapa 6 stigum, Chelsea vann Portsmouth á heimavelli en á eftir að spila útileikinn, Chelsea myndi því tapa 3 stigum. Liverpool myndi hagnast mest af liðunum í efstu sætunum því Portsmouth vann Liverpool 2-0 í desember. Verði Portsmouth rekið úr deildinni yrði ný stigatafla þannig að Chelsea væri með 55 stig en Manchester United 51 og ætti leik til góða. Munurinn á Arsenal og Liverpool sem eru í 3. og 4. sæti yfir samkvæmt nýrri töflu aðeins 2 stig í stað 8 núna. Arsenal ætti þá reyndar leik til góða gegn Liverpool. Forystumenn úrvalsdeildarinnar vilja allt til þess vinna til að halda Portsmouth í deildinni. Það yrði mikið áfall fyrir deildina verði ef til þess kæmi að Portsmouth yrði vísað úr keppni. Lið sem falla úr úrvalsdeildinni fá greiddar skaðabætur í 3 ár enda tekjumöguleikarnir miklu minni hjá liðum sem spila í neðri deildunum. Samkvæmt frétt í Daily Mail í morgun er það til skoðunar að greiða Portsmouth fyrirfram 11 milljónir punda sem félagið annars fengi 1. ágúst falli það úr deildinni. Úrvalsdeildin þarf að fá samþykki allra liða í deildinni til þess að þessi hugmynd gangi eftir. Portsmouth hefur þegar samið við flesta skuldareigendur en skattayfirvöld standa fast á sínu. ortsmouth hefur tíma fram til klukkan 16 á miðvikudag til að semja við skattayfirvöld. Á meðan reynir nýi eigandinn að selja félagið en tveir fjárfestar eru sagðir í viðræðum um kaupin.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Sjá meira