Prófessor strunsaði út úr viðtali á Útvarpi Sögu 12. febrúar 2010 12:51 Arnþrúður Karlsdóttir var vígreif í viðtali við Þórólf. „
Ég var sko ekkert dónaleg við hann," segir Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, en hagfræðiprófessorinn Þórólfur Matthíasson gekk út úr viðtali hjá henni í morgun eftir að hún krafði hann svara varðandi Icesave. Hún segist hafa beðið hann um að færa rök fyrir því að 90 prósent eigna Landsbankans fengjust upp í Icesave-skuldina og hann taldi sig hafa svarað spurningunni. Arnþrúður var ekki sátt við svarið og þótti hann ekki færa sannfærandi rök fyrir því að svo mikið fengist fyrir eignir bankans. „Þannig ég gekk á hann. Mér hefur fundist hann sleppa gagnrýnislaust í gegnum viðtölin sín á RÚV," segir Arnþrúður sem bað Þórólf um útreikninga sem sýndu fram á það að eignir Landsbankans næðu upp í svo stóran hluta Icesave-kröfunnar. Þórólfur benti henni á að skilanefnd Landsbankans héldi þessu sjálf fram og spurði hana á móti hvort hún teldi skilanefndina vera að ljúga. Arnþrúður sagði þá að annað eins hefði gerst og því færi hún varlega í að trúa slíkum nefndum. Svo hófst nokkurt orðaskak. „Og þá gekk hann bara út," segir Arnþrúður en Þórólfur sagði ekkert á leiðinni úr viðtalinu sem var í beinni útsendingu. Sjálf kvaddi hún hann með orðunum: „Vertu þá bara margblessaður." Arnþrúður hefur unnið lengi í fjölmiðlum en þetta er í fyrsta skiptið sem einhver gengur út frá henni í miðju viðtali í beinni útsendingu. Þess má geta að viðtalið verður endurflutt á útvarpi Sögu á bylgjulengdinni 99.4 klukkan 14:00 í dag. Ekki er hægt að hlusta á hljóðupptökur af því.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Innlent Fleiri fréttir Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sjá meira