Lífið

Opna markaðinn

Haukur Guðjónsson og Steinar Ingi, félagi hans, hafa opnað vefinn Búngaló.is. sem er leigumiðlun með sumarbústaði.fréttablaðið/vilhelm
Haukur Guðjónsson og Steinar Ingi, félagi hans, hafa opnað vefinn Búngaló.is. sem er leigumiðlun með sumarbústaði.fréttablaðið/vilhelm

„Þetta geta verið rosalega miklar tekjur fyrir íslenskar fjölskyldur, að leigja út sumarbústaði,“ segir frumkvöðullinn Haukur Guðjónsson.

Haukur og hönnuðurinn Steinar Ingi Farestveit hafa opnað vefinn Búngaló á slóðinni bungalo.is. Vefurinn er leigumiðlun fyrir sumarbústaði, en allir geta skráð bústaðinn sinn á síðuna. Notendur vefsins geta svo fundið sumarbústaði til leigu í þeim landshluta sem þeir óska eftir.

„Við erum búnir að vera að vinna í vefnum undanfarna mánuði,“ segir Haukur. „Við fórum af stað með þessa hugmynd fyrst í kjölfarið á því að við sjálfir höfðum verið að vesenast í því að finna bústaði. Okkur fannst vöntun á miðlægum grunni – einum stað sem maður getur farið á til að finna bústaðina.“

Vefurinn opnaði síðdegis á miðvikudag og viðbrögðin stóðu ekki á sér. Fólk er þegar byrjað að skrá sumarbústaði á síðuna, en það kostar ekki neitt. Markmiðið er svo að ekki aðeins Íslendingar nýti síðuna, heldur einnig erlendir ferðamenn.

„Það er fullt af fólki sem á bústaði,“ segir hann. „Það eru um 12.000 bústaðir skráðir á Íslandi í dag og flestir eru nýttir innan við 20% á ári. Sem þýðir að við erum með rosalega mikið af sumarbústöðum sem eru illa nýttir.“ - afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.