Innlent

Kannabis í Kópavogi og í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gær kannabisræktun á þremur stöðum, tvær í Kópavogi og eina í Hafnarfirði. Samtals var um að ræða 60 plöntur.

Fyrst uppgötvaði lögreglan ræktun í í húsi í Kópavogi eftir hádegi í gær og skömmu síðar í bílskúr í sama bæjarfélagi. Um kvöldið fann lögregla síðan ræktun í húsi í Hafnarfirði. Á öllum stöðunum þremur var fólk á á þrítugsaldri yfirheyrt, tveir karlmenn og eina kona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×