Varað við breytingu á heilbrigðislögum 29. janúar 2010 03:30 elsa b. friðfinnsdóttir „
Fátt hefur ógnað öryggi sjúklinga jafn mikið í langan tíma og þetta litla frumvarp um breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu sem nú liggur fyrir Alþingi," sagði Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, á málþingi félagsins um öryggi sjúklinga í gær. Hér vísar Elsa í frumvarp þar sem lagðar eru til tvær breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu. Lögin eru frá árinu 2007 og byggja á heildarendurskoðun laganna sem fór fram á árunum 2003 til 2006. Ein meginbreyting laganna eftir endurskoðun var hversu skýrt er kveðið á um ábyrgð stjórnenda í hjúkrun og lækningum og fagstéttir hafa talið mjög til bóta. Í frumvarpinu er annars vegar lagt til að ákvæði um faglega ábyrgð yfirlækna sérgreina eða sérdeilda á læknisþjónustu og faglega ábyrgð deildarstjóra hjúkrunar á hjúkrunarþjónustu falli brott. Hins vegar er lagt til að ákvæði um heilsugæslustöðvar sem gerir ráð fyrir að forstjórar og framkvæmdastjórnir heilbrigðisstofnana hafi samráð við yfirlækni og yfirhjúkrunarfræðing heilsugæslustöðvar verði fellt niður og þar með verði ekki lengur skylt samkvæmt lögum að á öllum heilsugæslustöðvum skuli vera yfirlæknir og yfirhjúkrunarfræðingur. „Það eru ekki fagleg rök fyrir þessari breytingu heldur eingöngu fjárhagsleg," sagði Elsa. Hún sagðist ekki skilja hvernig tryggja ætti þjónustu og öryggi með því að snarfækka millistjórnendum á sama tíma og með sameiningum er hverri heilbrigðisstofnun gert að starfa á mun stærra svæði en áður var. „Hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þýðir þetta að ef gripið verður til þess ráðs að fella út yfirlækna og yfirhjúkrunarfræðinga þá stýrir til dæmis framkvæmdastjóri hjúkrun fyrir 200 þúsund manns á fimmtán heilsugæslustöðvum í sex sveitarfélögum." Elsa sagði að margir héldu því fram að svo langt verði aldrei gengið eins og frumvarpið gefur tilefni til. Hins vegar verði þetta örugglega það sem horft verði til við sparnaðaraðgerðir næstu ára, og reyndar megi sjá þess stað að uppsagnir í anda frumvarpsins séu þegar hafnar. Það sjónarmið kom einnig fram að það væri afturför að sameina Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð, eins og ráðgert er. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Sjá meira