Innlent

Björgunarsveitir leituðu að unglingsstúlku í nótt

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Björgunarsveitirnar Berserkir, Elliði, Klakkur og Lífsbjörg á Snæfellsnesi leituðu í nótt að 13 ára gamalli stúlku sem saknað var frá Lýsuhóli.

Einnig var kallað út hundateymi frá Björgunarsveit Hafnarfjarðar.

Útkall barst sveitunum rétt fyrir klukkan 03:00 í nótt og um klukkan 4:30 fannst stúlkan heil á húfi. Hafði hún hlaupist á brott og falið sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×