LÍÚ samþykkti að sigla flotanum í land 13. janúar 2010 18:22
Útvegsmenn hafa samþykkt að fiskiskipaflotanum verði siglt í land og hann bundinn við bryggju láti ríkisstjórnin ekki af áformum um fyrningu kvótans. Stjórnvöld hafa verið látin vita af þessum áformum.Útgerðarmenn berjast nú ákaft gegn áformum ríkisstjórnarinnar að taka kvótann af þeim í áföngum með svokallaðri fyrningarleið. Það er til marks um hitann í þeirra röðum að á stjórnarfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna fyrir jól var gerð sérstök stjórnarsamþykkt þess efnis að ef allt um þryti yrði flotanum siglt í land og hann bundinn við bryggju.Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að enginn sé að segja að þetta muni gerast og engin ákvörðun hafi verið tekin og þetta sé algjört neyðarúrræði. Hann staðfestir að stjórnvöld hafi verið látin vita af þessari stjórnarsamþykkt.Það sem fer sérstaklega fyrir brjóstið á útvegsmönnum nú er að þeir telja að sjávarútvegsráðherra sé með frumvarpi sínu um skötusal, sem er í meðförum Alþingis, í raun að hefja fyrningu, þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi heitið því síðastliðið sumar að breytingar á kvótakerfinu yrðu settar í sáttafarveg með skipun sérstakrar nefndar.Spurður hvort þetta sé rétt baráttuaðferð, að hóta að sigla í land, kveðst Friðrik ekki líta á þetta sem hótun. Það séu stjórnvöld sem séu að hóta. Þau hóti því að taka veiðiheimildir af fyrirtækjunum og menn hljóti að bregðast við hótunum um að setja þau í þrot og þar með íslenskan sjávarútveg í gjaldþrot. Það sé ekki það sem Íslendingar þurfi núna.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Fleiri fréttir Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Sjá meira