Rauði krossinn með símasöfnun vegna hamfaranna í Haítí 13. janúar 2010 11:55 Frá Haítí. Mynd/AP „
Reynslan sýnir að fyrstu aðgerðir Rauða krossins í jarðskjálftum sem þessum eru að veita fólki skjól, mat og hreint vatn, auk læknisaðstoðar og sálræns stuðnings," segir Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, sem hefur opnað söfnunarsíma sinn vegna jarðskjálftans á Haítí í gærkvöldi. Rauði krossinn hér á landi hefur boðið fram vana sendifulltrúa í neyðarviðbrögðum. Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Haítí hafa unnið sleitulaust síðan í gærkvöldi að björgun og við að aðstoða sjúkrahús á hamfarasvæðinu við umönnun slasaðra, að fram kemur í tilkynningu frá Rauða krossi Íslands. Óttast er að þúsundir manna hafi farist í jarðskjálftanum sem reið yfir Haítí og að tugþúsundir fjölskyldna þurfi á tafarlausri neyðaraðstoð að halda. Brýnustu aðgerðir eru björgun úr rústum, uppsetning bráðabrigða sjúkraskýla og að koma fólki sem fyrst í öruggt skjól. Alþjóðlegt teymi sérfræðinga frá Rauða krossinum kemur til Haítí í dag til að veita aðstoð á hamfarasvæðunum. Í tilkynningunni segir að Rauði krossinn í Haítí hafi áralanga reynslu af neyðarviðbrögðum enda hamfarir tíðar á þessu svæði. Fellibyljir hafa valdið miklum usla á eyjunni undanfarinn áratug, sá síðasti árið 2008. Alþjóða Rauði krossinn mun senda út neyðarbeiðni seinna í dag, og hefur Rauði kross Íslands þegar boðið fram vana sendifulltrúa í neyðarviðbrögðum ef þörf reynist. Rauða kross félög í Karabíska hafinu hafa öflugt net sjálfboðaliða á svæðinu, sem þjálfaðir eru í neyðarviðbrögðum og geta brugðist tafarlaust við þegar hamfarir verða í nágrannaríkjum. Rauði kross Íslands hefur opnað fyrir söfnunarsíma sinn 904 1500 vegna jarðskjálftans. Þegar hringt er í númerið leggjast 1.500 krónur á næsta símareikning.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Fleiri fréttir Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Sjá meira