Vill virkja fyrir rafmagnsbílaverksmiðju 13. janúar 2010 18:49
Fimm virkjanir í þremur stórfljótum Suðausturlands eru í undirbúningi. Ráðamenn Skaftárhrepps taka vel í áformin og vonast til að orkuverin leiði til þess að iðnaður festi rætur í sveitinni. Sveitarstjórinn vill helst rafmagnsbílaverksmiðju.Við höfum á síðustu dögum greint frá virkjanaáformum landeigenda, bæði við Skaftá og Hverfisfljót. Í raun eru margar slíkar óskir á borðum hreppsnefndar Skaftárhrepps; stærstar eru Hólmsárvirkjun við Atley, 70 megavött, Skaftárvirkjun ofan Skaftárdals, 125 megavött, og svo virkjun Hverfisfljóts, upp á 60 megavött. Þá eru tvær smærri virkjanir í Skaftá í undirbúningi, við Skál og Dalbæ, 4 megavött hvor.Oddvitinn, Jóna S. Sigurbjartsdóttir, skoðar þetta með opnum huga. Þau séu ekkert að setja hornin í slík áform þótt þau sjái ekki fyrir sér að sveitarfélagið verði allt eitt virkjanasvæði. Til þess sé landið allt of fallegt. Hún kveðst þó ekki alfarið á móti virkjunum en tekur fram að hún vilji ekki sjá álver í sveitinni, enda standi það ekki til.Sveitarstjórinn, Bjarni Daníelsson, býst við beðið verði með ákvarðanir þar til rammaáætlun stjórnvalda um orkunýtingu liggur fyrir en henni er ætlað að leggja línur um hvaða svæði verði friðuð. Sveitarfélagið þarf að leita málamiðlana, það vill bæði fá iðnað og efla ferðaþjónustu.Bjarni telur sennilegt að samkomulag verði um umtalsverða stækkun á Vatnajökulsþjóðgarði og að Langisjór og sennilega Eldgjáin öll fari inn í hann. Sér þyki einnig sennilegt að eitthvað verði virkjað á þessu svæði.Hugmyndir að veita Skaftá yfir á Þjórsár- og Tungnaársvæðið eru þó út af borðinu hjá sveitarfélaginu sem hefur skipulagsvaldið. Jóna segir að það verði aldrei að Skaftá verði tekin vesturfyrir.Rík krafa er um að nýta orkuna heima í héraði. Bjarni segir að sveitarfélagið hafi kveðið nokkuð fast að orði með þetta en það sé kannski ekki alveg hægt að skilyrða það.Þau viljað iðnað en þegar spurt er hvernig iðnað, segir sveitarstjórinn margar hugmyndir nefndar og fer á flug. Hann spyr hvort þetta sé ekki upplagt svæði fyrir rafmagnsbílaverksmiðju eða rafhlöðuverksmiðju fyrir rafmagnsbíla. Það komi alltaf hugmyndir og ekki líði nema vika að ekki komi ný brilljant hugmynd.
Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Fleiri fréttir Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Sjá meira