Öll Eurovision-lögin tilbúin og spennan magnast 29. mars 2010 02:00 Fulltrúar fjögurra landa í ár Krakkarnir í SunStroke frá Moldóvíu, Þjóðdansafélag Slóveníu, hinn eyrnastóri Michael von der Heide frá Sviss og listakonan Aisha frá Lettlandi.
Lögin 39 í Eurovision eru nú komin fram og Eurovision-vertíðin fyrst byrjuð fyrir alvöru. Óhætt er að segja að fátt komi verulega á óvart í þessari fimmtugustu og fimmtu Eurovisionkeppni. Stuðið hefst þriðjudaginn 25. maí. Þá keppa 17 lög um tíu laus sæti í aðalkeppninni. Íslenska lagið er síðast á dagskrá, sautjánda lag kvöldsins. Það þykir ágætis staður til að vera á. Moldóvar ríða hins vegar á vaðið þetta kvöld með hressilegu europoppi á ensku í flutningi SunStroke Project og söngkonunni Olia Tira. Keppninautar HeruÞað er mikill hrærigrautur í gangi þetta kvöld, en öll frumefni Eurovision síðustu ára eru samt á sínum stað, hvort sem það eru léttklæddar ljóskur eða þjóðlegi fílingurinn. Stundum fer þetta saman eins og hjá frændum okkar Finnum sem senda tvær söngkonur úr kvennagrúppunni Värttinä. Önnur spilar líka á harmóníku og lagið er ekta finnskur tangó sunginn á finnsku. Þótt enskan sé enn þá vinsæl hafa nokkrar þjóðir tekið þá áhættu að syngja á móðurmálinu. Á okkar undankvöldi syngur til að mynda slóvakíska söngkonan Kristina á slóvakísku, rétt eins og Serbinn Milan Stankovic, Grikkinn Giorgos Alkaios, Portúgalinn Filipa Azevedo og Gjoko Taneski frá Makedóníu. Á meðan við bíðum eftir Heru á svið fáum við að heyra vestrænt tölvuknúið popp og dramatískar ballöður – allt samkvæmt bókinni. Lagið „Siren“ með Malcolm Lincoln & Manpower 4 frá Eistlandi er líklega óvenjulegasta lag kvöldsins. Þar er ófrumleika skipt út fyrir einlægan drengjasöng í ágætis lagi. Hrærigrauturinn heldur áframOftast er lítill spenningur fyrir „hinu“ undankvöldinu, því sem Ísland er ekki með á, enda harðkjarna Eurovision-fíklar ekki svo fjölmennur hópur. Á því kvöldi heldur hrærigrauturinn áfram að bulla á pönnunni í Ósló. Þeir sem leggja það á sig munu heyra 17 lög, sungin á hebresku, frönsku, hollensku, slóvakísku, búlgörsku, króatísku og ensku. Þarna eru ýmsar þjóðir sem við höfum hrúgað á stigum í gegnum tíðina. Danska lagið er mjög „danskt“ og flutt af Chanée and N’evergreen, ungu og fallegu fólki. Lagið minnir nokkuð á „Every breath you take“ með Police. Svíar senda Önnu Bergendahl, sem syngur fremur tilþrifalitla ballöðu. Frændur okkar Írar senda íralega ballöðu með söngkonunni Niamh Kavanagh. Niamh, sem er fædd árið 1968, hefur reynslu af Eurovision því hún sigraði í keppninni árið 1993 með laginu „In your eyes“, sem ekki nokkur maður man eftir. Franskt rappTíu lög fara áfram af þessu kvöldi og það verða því 25 lög samtals á aðalkvöldinu laugardaginn 29. maí. Fimm lög þurfa ekki að fara í gegnum nálarauga undankeppnanna, „stóru löndin fjögur“ og gestgjafarnir Norðmenn, sem senda ungan hjartaknúsara, Didrik Solli-Tangen, og angurværa sykurballöðu. Spánverjar senda Daniel Diges, mann með afró, aðstoðarballerínu og ballöðu á spænsku í farteskinu. Bretar bjuggu til „idol-keppni“ í kringum sitt val og í henni vann hinn vongóði Josh, sem syngur þunnt stuðlag eftir Waterman og Stock, sem voru heitir fyrir rúmlega tuttugu árum. Blakki rapparinn Jessy Matador tekur hresst stuðlag fyrir Frakka, „Allez! Ola! Olé!“ og rappar að sjálfsögðu á frönsku. Þjóðverjum er ekki eins annt um þjóðtunguna og Frökkum og senda Lenu Meyer-Landrut að syngja lagið „Satellite“ á ensku. Það er ljóst að Emilíana Torrini hefur haft mikil áhrif á þýska poppið því laginu svipar nokkuð til poppuðustu laga hennar. drgunni@frettabladid.is
Mest lesið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Fleiri fréttir „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Sjá meira