Innlent

Aðgerðir ríkisstjórnar varðandi HS Orku settar á fulla ferð

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
„Við erum að vinna í því að ræða næstu skref í þeim málum. Það verður sett á fulla ferð, aðgerðir sem því tengjast," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, aðspurður hvort að ríkisstjórnin ætli að bregðast við niðurstöðum Magma-nefndarinnar. Nefndin komst að því að kaup Magma á HS Orku væri lögleg.

Hann segir aðgerðirnar snúa að ýmsum þáttum, bæði samskiptum við Magma, lagaumgjörð og fleiru. En stendur ríkisstjórnin ennþá föst á því að vinda ofan á kaupum Magma á HS Orku? „Yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá því maí og frá því í júlí eru alveg skýrar í þeim efnum, hver markmið ríkisstjórnarinnar eru í þessum efnum," segir Steingrímur.




Tengdar fréttir

Hótar að hætta við kaupin á HS Orku

Ross Beaty, forstjóri kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy, hefur hótað að fresta eða jafnvel hætta við kaup fyrirtækisins á HS Orku vegna pólitískrar óvissu, að því er Financial Times greinir frá í dag.

Lausn komin á Magma-málið

Ríkisstjórnin hefur komist að niðurstöðu í Magma málinu og verður hún kynnt í dag. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa setið á fundum í allan dag vegna málsins, en eins og kunnugt er lýstu þrír þingmenn Vinstri grænna því yfir um helgina að þeir myndu ekki styðja ríkisstjórnina áfram verði samningurinn um kaup Magma Energy á HS Orku ekki ógiltur.

„Ég fagna þessari niðurstöðu“

„Ég fagna þessari niðurstöðu," sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á blaðamannafundi nú fyrir stundu. Þar var tilkynnt að það sé ásetningur ríkisstjórnarinnar að vinda ofan af einkavæðingu í orkugeiranum og tryggja að orkufyrirtæki séu í eigu opinberra aðila. Þá verður eign einkaaðila að orkugeiranum takmörkuð með lagafrumvarpi.

Munu ekki staðfesta samningana

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur ríkisstjórnin ákveðið að greina forsvarsmönnum Magma Energy á Íslandi frá því að áhöld séu um lögmæti samninganna um kaupin á HS orku og því sé ekki hægt að staðfesta þá af opinberri hálfu núna.

Magma rætt í ríkisstjórn

Starfshópur sem stjórnvöld skipuðu til að meta lögmæti kaupa sænsks dótturfyrirtækis kanadíska fyrirtækisins Magma Energy á HS orku hefur skilað niðurstöðu sinni.

Magma segir áskanir Bjarkar vera fráleitar

Framkvæmdastjóri Magma Energy á Íslandi hafnar alfarið ásökunum Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarmanns þess efnis að fyrirtækið vilji eignast allar orkuauðlindir á Íslandi. Ummælin lét Björk falla í viðtali við AFP fréttaveituna í Helsinki í Finnlandi í gær.

Kaupin á HS Orku líklega lögleg

Kaup Magma Energy Sweden á HS Orku eru í samræmi við lög samkvæmt þremur af fjórum mögulegum lagatúlkunum sem fjallað er um í skýrslu nefndar um orku og auðlindamál sem fjalla átti um kaupin.

Nefndin: Kaup Magma Energy á HS Orku eru lögleg

Í skýrslu nefndar um orku- og auðlindamál kemur fram að skoðun nefndarinnar á samningum um kaup Magma Energy á HS orku sem hún fékk aðgang að leiddi ekki í ljós neina augljósa annmarka. Frá lagalegum sjónarhóli sé ekki tilefni til að gera athugasemdir við samningana sem slíka.

Skýrsla Magmanefndar fyrst kynnt þingflokkum

Skýrsla nefndarinnar sem falið var að meta lögmæti kaupa Magma Energy á HS Orku var kynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu verður niðurstaðan kynnt þingflokkunum áður en hún verður gerð opinber, en ekki liggur fyrir hvort það verður í dag eða síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×