Kaupin á HS Orku líklega lögleg 17. september 2010 05:30
Kaup Magma Energy Sweden á HS Orku eru í samræmi við lög samkvæmt þremur af fjórum mögulegum lagatúlkunum sem fjallað er um í skýrslu nefndar um orku og auðlindamál sem fjalla átti um kaupin. Skýrsla Magma-nefndarinnar verður kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru í henni reifaðar nokkrar leiðir sem stjórnvöld hafa til að bregðast við vegna kaupa Magma. Álitamálum vegna kaupanna verði hins vegar ekki svarað nema fyrir dómstólum. Samkvæmt heimildum blaðsins er meginniðurstaða nefndarinnar sú að kaup Magma samrýmist íslenskum lögum og að ekki hafi verið að finna augljósa annmarka á þeim samningum sem nefndin hafði til skoðunar. Um leið munu dregnar upp ólíkar leiðir við túlkun á lögum. Einungis í einni af fjórum mögulegum túlkunum er niðurstaðan sú að kaup Magma samrýmist ekki íslenskum lögum. Til að komast að slíkri niðurstöðu þyrfti að víkja frá formlegri túlkun lagaákvæða og gefa sér að Magma Energy í Kanada væri aðili að kaupunum, ekki Magma í Svíþjóð. Í skýrslu nefndarinnar mun þó koma fram að samkvæmt athugun hafi verið stofnað til fyrirtækisins Magma Energy í Svíþjóð með lögmætum hætti og fyrirtækið skráð í samræmi við sænskar reglur. - óká
Fréttir Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira