Innlent

Manndráp: Niðurstöður rannsókna farnar að berast frá Svíþjóð

Gunnar Rúnar Sigurþórsson.
Gunnar Rúnar Sigurþórsson.

Rannsókn manndrápsmálsins í Hafnarfirði miðar vel samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.

Bráðabirgðaniðurstöður lífsýna, sem voru sendar til Svíþjóðar til rannsóknar, eru teknar að berast. Ekki er þó hægt að greina frá niðurstöðum einstakra sýna að svo stöddu samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Dómkvaddur sérfræðingur annast geðrannsókn á Gunnari Rúnar Sigurþórssyni, sem hefur játað manndrápið, svo unnt sé að meta geðrænt sakhæfi hans.

Yfirheyrslum yfir Gunnari hefur verið framhaldið.

Jafnframt hefur verið unnið að frekari gagnaöflun og úrvinnslu. Gunnar Rúnar hefur játað sök líkt og fram hefur komið en aðrir eru ekki grunaðir um aðild. Málið telst því upplýst í meginatriðum.

Málið verður sent ríkissaksóknara til afgreiðslu þegar formlegar og endanlegur niðurstöður krufningar, lífsýna og geðrannsóknar liggja fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×