Vestfirðir fá evrópsk ferðamálaverðlaun 1. október 2010 12:18 Sveinn Rúnar Traustason, Vigdís Esradóttir og Sigurður Atlason taka við verðlaununum frá Antonio Tajani sem er annar frá hægri.
Vestfirðir fengu EDEN ferðamálaverðlaunin við hátíðlega athöfn í Brussel í vikunni. EDEN stendur fyrir „European Destination of Excellence" en Vestfirðirnir voru meðal þeirra áfangastaða sem hlutu þann heiður að vera útvaldir, fyrstir íslenskra áfangastaða. Verðlaunin leggja áherslu á sjálfbæra ferðaþjónustu en í ár er þemað vatns- og sjávartengd ferðaþjónusta . Það var að tilstuðlan Vatnavina Vestfjarða, samstarfshóps í heilsutengdri ferðaþjónustu, sem Vestfirðirnir taka þátt í verkefninu en í kjölfarið verður svæðinu hampað víða. Hægt er að fræðast nánar um Vatnavini Vestfjarða á slóðinni www.watertrail.is Verðlaunasvæðin eru valin út frá frumlegri nálgun að ferðamennsku og fyrir að starfa á sjálfbæran hátt. Þannig vill EDEN auka sýnileika afburða áfangastaða sem gjarnan eru lítt þekktir. Með því að fjölga áhugaverðum áfangastöðum í sjónlínu ferðamanna er einnig hægt að minnka álagið á ofnýttum ferðamannastöðum. „Þessir 25 afburða staðir bera virðingu fyrir náttúrunni og vinna á umhverfisvænan hátt til að varðveita vistkerfið fyrir komandi kynslóðir. Þessir staðir, sem flestir eru við strandir, vötn eða ár, leggja áherslu á frumlega nálgun í vatnaferðamennsku sinni. Ekki aðeins til að koma gæðum landsins á framfæri heldur einnig til að takast á við árstíðabundin vandamál og til að koma jafnvægi á straum ferðamanna til óhefðbundinna áfangastaða," sagði Antonio Tajani, varaforseti Evrópunefndar sem fer fyrir málefnum iðnaðar og frumkvöðlastarfsemi. Þeir staðir sem voru verðlaunaðir eru: Seelentium - Upper Innviertel svæðið í Austurríki Eau d'heure vötnin í Belgíu Silistra í Búlgaríu Nin í Króatíu Kato Pyrgos á Kýpur Bystnicko í Tékkalndi Võrtsjärv vatn í Eistlandi Saimaa Holiday í Finnlandi Grand Site du Marais Poitevin í Frakklandi V-Pómeranían vatnasvæðið í Þýskalandi Serres í Grikklandi Tisza vatn í Ungverjalandi Vestfirðir á Íslandi Loop Head skaginn á Írlandi Monte Isola á Ítalíu Sea Resort Jurmala í Lettlandi Zarasai svæðið í Litháen Upper Sure garðurinn í Lúxembúrg Isla (Senglea) á Möltu WaterReijk Weerribben Wieden - Giethoorn & votlendissvæðið í Hollandi Biebrza dalurinn og votlendissvæðið í Póllandi Geoagiu B?i í Rúmeníu Kolpa áin í Slóveníu A Guarda á Spáni Bitlis-Nemrut gígsvatnið í Tyrklandi EDEN hefur lagt áherslu á að koma sjálfbærri ferðamennsku á framfæri frá 2007, bæði innan Evrópusambandsins og landa sem eru að sækja um inngöngu. Keppni fer fram innan hvers lands og á hverju ári er nýtt þema í keppninni. Hingað til hafa þemun verið ferðamennska í dreifbýli, óáþreifanleg arfleifð, vernduð svæði og vatnatengd ferðamennska.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira