Innlent

Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg

Kort frá Veðurstofu Íslands sem sýnir hrinuna. Skjálftar merktir stjörnu eru yfir 3 á richter.
Kort frá Veðurstofu Íslands sem sýnir hrinuna. Skjálftar merktir stjörnu eru yfir 3 á richter.

Upp úr miðnætti í nótt hófst jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg en mesta virknin var frá 04:30 til 06:00 og mældist á jarðskjálftastöðvum um allt land. Í morgun höfðu á þriðja hundrað skjálftar mælst, flestir við Geirfugladrang u.þ.b. 40 km suðvestur af Reykjanestá.

Stærsti skjálftinn varð kl. 05:22 og var hann 3,6 að stærð.

Á vef Veðurstofunnar segir að jarðskjálftahrinur séu nokkuð algengar á Reykjaneshrygg. Heldur hefur dregið úr virkninni eftir því sem liðið hefur á morguninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×