Menningarstofnun á Grundarstíg í óvissu 18. febrúar 2010 05:45 Grundarstígur 10 Þótt sjálfseignarstofnuninni Hannesarholti sé ætlað að efla jákvæða hugsun og uppbyggilega umræðu er ekki eining meðal íbúanna á Grundarstíg um starfsemina.Fréttablaðið/GVA
Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hefur ógilt byggingarleyfi til handa sjálfseignarstofnuninni Hannesarholti á Grundarstíg 10 og sömuleiðis breytingu á notkun hússins úr íbúð í húsnæði undir blandaða atvinnustarfsemi. „Við erum mjög slegin yfir þessari niðurstöðu, sér í lagi þar sem tilgangurinn er að opna þetta sögufræga hús fyrir almenningi," segir Ragnheiður Jónsdóttir, einn eigenda hússins, sem á sínum tíma var byggt af Hannesi Hafstein, skáldi og ráðherra. Borgarráð staðfesti byggingarleyfi fyrir stækkun og breytta notkun hússins á Grundarstíg 10 í ágúst í fyrra. Meðal annars var leyft að hækka risið og rífa bílskúr til að geta komið fyrir viðbyggingu með litlum sal fyrir tónlistarflutning og fleira. Nágrannarnir í húsinu andspænis við götuna kærðu ákvörðun borgarráðs. Sögðu þeir starfsemi Hannesarholts myndu valda ónæði inni í miðju íbúðahverfi. Úrskurðarnefndin segir að ætla megi að starfseminni fylgi aukin umferð og umgangur, hávaði og aukið álag á bílastæði fram eftir kvöldum. Breytingin á notkun hússins væri svo veruleg að ekki hafi verið skilyrði til að afgreiða byggingarleyfi eftir undantekningarákvæði eins og borgaryfirvöld gerðu. Ekki væri gerð grein fyrir því hvernig mæta eigi aukinni þörf fyrir bílastæði. „Loks er engin grein gerð fyrir því hvernig hið umdeilda byggingarleyfi samræmist stefnumarkandi ákvörðunum þróunaráætlunar miðborgar um íbúðarsvæði, samþykktum í borgarráði 10. október 2000, þar sem fram kemur að á íbúðasvæðum miðborgarsvæðis sé meginmarkmið borgaryfirvalda að vernda og bæta íbúðabyggð og umhverfi hennar," segir enn fremur í niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar. Markmið Hannesarholts er „að efla jákvæða, gagnrýna hugsun í íslensku samfélagi, auka skilning á gildi sögunnar fyrir samtímann og framtíðina og hvetja til uppbyggilegrar umræðu og samveru." Ragnheiður segir að slík starfsemi ætti að fá að blómstra og að viðtökur fram til þessa hafi almennt verið afar jákvæðar. „Þetta er mitt hjartans mál og ég er þakklát fyrir að geta gert þetta en manni finnst erfitt að geta tekið þátt í uppbyggingu og mega það ekki. Í þessu hverfi, sem hefur alla tíð verið blandað, sjáum við ekki þessa ógn eins og þessir einstaklingar sem kærðu leyfisveitingu Reykjavíkurborgar," segir Ragnheiður Jónsdóttir. gar@frettabladid.is
Mest lesið Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Veður „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Innlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Erlent NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Erlent Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Innlent Fleiri fréttir Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjá meira