Innlent

RÚV varar bjórframleiðenda við vegna áfengisauglýsingar

Páll Magnússon segir RÚV ekki firra sig ábyrgð.
Páll Magnússon segir RÚV ekki firra sig ábyrgð.

"Það er best að taka það fram strax að persónulega skil ég og styð eindregið viðleitni Foreldrasamtakanna til að sporna gegn drykkju barna og unglinga," segir Páll Magnússon, útvarpsstjóri RÚV, vegna kæru Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, en samtökin hafa kært RÚV fyrir birtingu á þremur auglýsingum þar sem léttöls-merkið á að hafa vantað.

Páll segir að hvort sem mönnum líki betur eða verr þá séu hinvar svokölluðu „léttölsauglýsingar" löglegar.

Svo virðist sem það hafi gleymst að setja fyrirvara á auglýsinguna sem RÚV birti. Páll segir eftirlit sem RÚV hefur með slíkum auglýsingum hafa brugðist í því tilviki.

„Af því tilefni höfum við hert okkar eigin eftirlit og sent viðkomandi auglýsanda harðorða athugasemd og viðvörun," segir Páll.

Spurður hvort það sé ekki sanngjörn krafa um að takmarka auglýsingar af þessu tagi svarar Páll:

„Það er ekki á valdi RÚV að setja aðrar takmarkanir á auglýsingar af þessu tagi en gert er í lögum. Baráttufólk gegn þessum auglýsingum verður að beina spjótum sínum að Alþingi og mér finnst reyndar sérkennilegt að meginþungi baráttunnar skuli ekki vera á þeim vettvangi. Þar er lögum breytt - ekki í Ríkisútvarpinu."

Samkvæmt útvarpslögum er auglýsandi ábyrgur fyrir auglýsingum sínum. Það kemur mjög skýrt fram. Páll áréttar þó að RÚV firri sig ekki ábyrgð:

„Við höfum uppi eftirlit með auglýsingum af þessu tagi og margoft hafnað birtingu þeirra ef við teljum þær brjóta í bága við lög."


Tengdar fréttir

Foreldrasamtök vilja að útvarpsstjóri sæti ábyrgð

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum vilja að útvarpsstjóri sæti ritstjórnarlegri ábyrgð vegna áfengisauglýsinga, sem birtar eru í Ríkissjónvarpinu í tengslum við heimsmeistaramótið í knattspyrnu.

RÚV kært fyrir að auglýsa áfengi

„Við erum búin að senda þrjár kærur,“ segir Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, en samtökin hafa lagt fram þrjár kærur gegn RÚV vegna meintra brota á lögum um áfengisauglýsingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×