Innlent

Varað við eitruðum skelfiski

Fólki er bent á að fylgjast vel með ef það hyggst tína skelfisk.
Fólki er bent á að fylgjast vel með ef það hyggst tína skelfisk.
Vöktun Hafrannsóknastofnunar og Matvælastofnunar á eitruðum svifþörungum í Breiðafirði við Flatey og Stykkishólm og í Hvalfirði við Hvammsvík hefur leitt í ljós að magn eitraðra svifþörunga er yfir viðmiðunarmörkum. Því sé veruleg hætta á að kræklingur og annar skelfiskur sé eitraður og óhæfur til neyslu.

MAST varar við neyslu á skelfiski frá umræddum svæðum og er ástandið í Breiðafirði sérstaklega hættulegt vegna mikils magns þörunga sem valda lömunareitrun. - jss



Fleiri fréttir

Sjá meira


×