Innlent

Danskir dagar slegnir af í Stykkishólmi

Bæjarhátíðinni Dönskum dögum í Stykkishólmi, hefur verið aflýst í sumar, en Danskir dagar hafa verið haldnir í Hóllminum í 16 ár.

Þótti það einkar vel til fundið, því áður og fyrr þóttu dönsk áhrif vera svo ríkjandi í Stykkishólmi, að þar væri töluð danska á sunnudögum.

Skessuhorn hefur það eftir forseta bæjarstjórnar að heimafólk virðist ekki vera tilbúið til að vinna það verk sem þarf, til að halda svona hátíð. Hún hefur verið haldin 13 til 15 ágúst og hafa brottfluttir Hólmarar jafnan notað tækifærið til að heimsækja heimaslóðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×