Jón vill allan afla á land 9. mars 2010 06:45 HB Grandi gerir út fimm frystiskip, þrjá ísfisktogara auk fjögurra uppsjávarskipa. fréttablaðið/valli „
Það er mín skoðun að koma eigi með allan afla að landi. Þetta snýr að siðlegri umgengni okkar við sjávarauðlindina og séu á því gerðar undantekningar, þá séu þær vel ígrundaðar,“ segir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Tilefnið er niðurstaða nýrrar skýrslu Matís um nýtingu sjávarafla, en nýting frystiskipa er talsvert lakari en landvinnslunnar. Spurður um skilaboðin til útgerðarinnar segir Jón það oftúlkun að hann vilji breyta útgerðarháttum og segir enga mótsögn felast í því að vilja fá allan afla í land og halda áfram sjófrystingu með sama hætti og nú er. Hins vegar sé mögulegt að bæta aðstöðu til frekari nýtingar um borð í skipunum. Það sé raunhæft með góðum aðlögunartíma. „Því er ekkert sem segir að við getum ekki komið með allan afla að landi og gert það með ágætum hagnaði í nánustu framtíð,“ segir Jón. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir það keppikefli útgerðarinnar að hámarka verðmætasköpun um borð í frystiskipunum. „Það er búið að fara í gegnum þetta ítrekað; að skikka menn til að koma í land með allt hráefni sem fellur til. Það hefur hins vegar sýnt sig að það gengur ekki upp. Ég spyr til hvers sé barist ef útgerð og vinnsla tapa á öllu saman.“ Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda, segir að aðstæður um borð í skipunum og tegundir hráefnisins ráði því hversu miklir möguleikar séu til fullnýtingar. „Auðvitað viljum við koma með sem mest að landi en það verður að vera framkvæmanlegt. Höfum hugfast að sjómenn eru oft að vinna fisk í kappi við tímann. Viðkvæmt hráefni verður að vinna hratt til að hámarka gæði. Aðstæður um borð í hverju skipi fyrir sig ráða því miklu.“ Eggert segir að nýtingu um borð í skipunum þurfi að hafa í huga í samhengi við endurnýjun flotans. Ef skipið er frá upphafi búið til að fullnýta aflann, bæði hvað varðar bræðslu og frystingu, aukist möguleikar til að skapa verðmæti. Flotinn eins og hann er samsettur í dag takmarki hins vegar þessa möguleika. „Sjómenn og fyrirtæki verða að bera eitthvað úr býtum fyrir alla þá vinnu sem fylgir þessu,“ segir Eggert. - shá
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Fleiri fréttir „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sjá meira