Innlent

Álversstækkun í Straumsvík óviss þótt íbúar samþykki

Upplýsingafulltrúi Alcan á Íslandi segir forstjóra fyrirtækisins og forstjóra Rio Tinto Alcan í Evrópu hafa gengið á fund bæjarstjórans í Hafnarfirði fyrir nokkru og veitt svör við öllum spurningm bæjaryfirvalda.Fréttablaðið/GVA
Upplýsingafulltrúi Alcan á Íslandi segir forstjóra fyrirtækisins og forstjóra Rio Tinto Alcan í Evrópu hafa gengið á fund bæjarstjórans í Hafnarfirði fyrir nokkru og veitt svör við öllum spurningm bæjaryfirvalda.Fréttablaðið/GVA
„Það myndi hjálpa okkur ef bæjar-yfirvöld myndu lýsa yfir stuðningi við málið,“ segir Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Alcan á Íslandi, um orð Rannveigar Rist, forstjóra fyrirtækisins, í bréfi til bæjaryfirvalda í Hafnarfirði.

Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær lýsir Rannveig í bréfi sínu áhyggjum af áhrifum þess að íbúar í Hafnarfirði synji álverinu aftur um stækkun í endurtekinni íbúakosningu. „Stuðningur bæjaryfirvalda myndi draga verulega úr þeim áhyggjum.“ skrifaði hún í bréfinu sem dagsett er 28. janúar síðastliðinn.

Lúðvík Geirsson bæjarstjóri sagði aðspurður í Fréttablaðinu í gær að honum væri ekki ljóst hvort forstjórinn væri í bréfinu að biðja bæjaryfirvöld um stuðning í aðdraganda væntanlegrar íbúakosningar sem enn á eftir að tímasetja. Upplýsingafulltrúi Alcan tekur af tvímæli um það eins og sjá má af ummælum hans hér að framan. Þá sagði bæjarstjórinn nauðsynlegt að fá fram skýra afstöðu Alcan varðandi nýju íbúakosninguna og að svör frá fyrirtækinu hafi ekki verið nógu afdráttarlaus.

„Við áttum fund með bæjarstjóranum um það bil hálfum mánuði eftir að bréfið var sent og það var ekkert óljóst eftir þann fund af okkar hálfu,“ segir Ólafur Teitur hins vegar. „Rannveig Rist var á fundinum og líka Evrópuforstjórinn fyrir Rio Tinto Alcan. Þannig að þetta var gert með fulltingi móðurfélagsins og allt var klárt.“

Upplýsingafulltrúi Alcan segir það þannig nú vera bæjarins að ákveða hvort og hvenær eigi að fara í íbúakosningarnar sem fjórðungur atvæðisbærra manna í Hafnarfirði óskaði eftir. Fyrir sitt leyti vilji Alcan einfaldlega að kosið verði um óbreytta þá deiliskipulagstillögu sem kosið var um 2007. Fyrirtækið sé hins vegar í öðrum framkvæmdum um þessar mundir og hafi enga skoðun á því hvenær kosningin fari fram.

„Við getum ekki lýst því yfir að við förum í þetta verkefni ef það verður samþykkt í atkvæðagreiðslunni enda er þetta fjárfesting fyrir hundruð milljarða króna. En við höfum áhuga á að auka umsvif okkar á Íslandi og já í þessari atkvæðagreiðslu yrði af okkar hálfu mjög vel þegið fyrsta skref í því að það geti orðið í Hafnarfirði,“ segir Ólafur Teitur.

gar@frettabladid.is

Tengdar fréttir

Vill nota veiðikvóta til kolefnisjöfnunar

Hvalveiðar hafa losað gríðarlegt magn gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið í gegnum tíðina, þar sem mikið magn kolefnis er geymt í líkama svo stórra dýra. Þetta kom fram á ráðstefnu haffræðinga í Bandaríkjunum nýverið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×