Innlent

Vilja funda um Icesave hér á landi

Á fundi leiðtoga stjórnmálaflokkanna um stöðuna í Icesave-málinu sem fram fór í Alþingishúsinu í hádeginu var lagt til að frekari fundarhöld í málinu fari fram hér á landi. Hingað til hafa samninganefndirnar fundað í London.

Það var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins sem lagði þetta til og segir hann að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafi tekið vel í hugmyndina. Að sögn Sigmunds verður þetta borið undir viðsemjendur Íslendinga í málinu og þá komi í ljós hvort þeir fallist á nýjan fundarstað.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×