Ekki útséð um niðurskurð hjá Stígamótum Óli Kristján Ármannsson skrifar 9. mars 2010 06:00 Ársskýrslan kynnt Starfskonur Stígamóta, Karen Eiríksdóttir, Guðrún Jónsdóttir og Þórunn Þórarinsdóttir, kynntu ársskýrslu Stígamóta í gær. 5.347 hafa leitað hjálpar hjá Stígamótum á 20 ára starfstíma samtakanna. Fréttablaðið/GVA
Nýjum málum fækkaði í fyrra um 15 prósent milli ára hjá Stígamótum, grasrótarsamtökum gegn kynferðisofbeldi. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir fækkunina að hluta skýrast af samdrætti í starfseminni. Einnig kunni efnahagsþrengingar þjóðarinnar að verða til þess að fórnarlömb kynferðisofbeldis leiti sér síður hjálpar. Fólk sé gjarnan að fást við löngu liðna atburði og skorti til þess þrek í öðrum aðsteðjandi vanda. Frá stofnun Stígamóta hafa 5.347 manns leitað til samtakanna, en þau fagna nú 20 ára afmæli sínu. Samtökin voru stofnuð 8. mars 1989 á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Fjöldi nauðgunarmála var nærri sá sami og árið áður, eða 157. Guðrún sagði hins vegar að sifjaspellsmálum hefði farið fækkandi undanfarin fjögur ár. „Þarna gæti verið að við séum að vinna upp gamlan vanda,“ sagði Guðrún, en tölfræðin sýnir að oft er það ekki fyrr en 15 til 20 árum eftir að brot hafa átt sér stað, að fórnarlömbin leita sér hjálpar hjá Stígamótum. Mál sem tengdust hópnauðgunum voru þrettán talsins í fyrra, sem og mál þar sem grunur lék á um lyfja-nauðgun. Hópnauðganamál voru tveimur fleiri árið 2008, en það ár segir Guðrún að hafi orðið „gífurleg“ fjölgun slíkra mála. Vettvangur nauðgana er í 70 prósentum tilvika heimili landsins, allnokkur hluti mála á sér stað á útihátíðum eða skemmtistöðum. Svokallaðar götunauðganir, þar sem ráðist er á konur úr launsátri, eru undantekningartilvik, að sögn Guðrúnar. Hún segir tölfræði samtakanna sýna að allt of mikið sé lagt upp úr líkamlegum áverkum þegar nauðgunarmál rata fyrir dóm. Í 30,8 prósentum tilvika sé beitt hótunum við nauðganir, en líkamlegu ofbeldi í 18,6 prósentum tilvika. „Nauðgunarákvæði ættu að endurspegla að það sé spurning um samþykki, hvort nauðgun hafi átt sér stað eða ekki.“ Guðrún segir Stígamót hafa þurft að draga saman seglin og ekki sé alveg útséð um frekari samdrátt. Framlag ríkisins hafi verið skert um 10 prósent, en ekki liggi fyrir hvað verði með framlag sveitarfélaga. Vegna þessa hafi samtökin þurft að hætta ferðum út á land þar sem fórnarlömbum kynferðisofbeldis voru boðin viðtöl. „Það fækkaði hér um tvö stöðugildi á árinu, þannig að eitthvað varð undan að láta.“
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira