Ellefu HIV smit á tæpum þremur mánuðum 25. október 2010 13:16
Ellefu manns hafa greinst með HIV smit frá því í byrjun ágúst hér á landi. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum Landlæknisembættisins sem birtar voru í dag en í byrjun ágúst höfðu fimm smitast. Sextán manns hafa því í allt smitast það sem af er ári og sóttvarnarlæknir talar um holskeflu síðustu vikur. Haraldur Briem Sóttvarnarlæknir segir rétt að aukningin sé óvenju mikil á ekki lengri tímabili. „Síðan kom þarna nánast holskefla," segir hann en bætir við að oft rokki fjöldi smita upp og niður. „Oft kemur aukning í árslok en síðustu vikurnar hafa ansi margir verið að greinast," segir Haraldur. Mest er aukningin á meðal fíkniefnaneytenda en einig eru innflytjendur frá löndum þar sem alnæmi er útbreitt töluverður hópur. Haraldur segir að hjá Landlækni hafi menn þó mestar áhyggjur af fíkniefnaneytendum og smitum í þeim hópi. Þó enn séu rúmir tveir mánuðir eftir af árinu er nú þegar um metjöfnun að ræða. Árið 1985 greindust sextán á öllu árinu en Haraldur bendir á að fyrstu árin sem skimað var eftir veirunni séu ekki mjög marktæk. „Manni finnst þetta því óþægilega mikið. Og árið er ekki liðið," segir Haraldur Briem. Nánar er fjallað um málið í Farsóttafréttum.
Tengdar fréttir Ekki til marks um fjölgun smita Á síðasta ári greindust 13 manns með HIV veiruna, en ekki hafa fleiri greinst á einu ári síðan 1985 þegar 16 greindust. Ekki stefnir í fjölgun smita það sem af er árinu 2010, en sóttvarnalæknir segir toppinn á síðasta ári ekki til marks um fjölgun smita. 9. ágúst 2010 13:07 Flest tilfelli af HIV í 25 ár Fjöldi tilfella nýrra HIV-greininga hefur ekki verið meiri hér á landi síðan 1985. Á síðasta ári greindust þrettán tilfelli, en árið 1985 voru þau sextán. Mælingar hófust fyrst árið 1983 og var þá einn einstaklingur sem greindist með HIV-veiruna. Kemur þetta fram í skýrslu Landlæknisembættisins. 9. ágúst 2010 05:00 Mest lesið „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Innlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Innlent Fleiri fréttir Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Sjá meira
Ekki til marks um fjölgun smita Á síðasta ári greindust 13 manns með HIV veiruna, en ekki hafa fleiri greinst á einu ári síðan 1985 þegar 16 greindust. Ekki stefnir í fjölgun smita það sem af er árinu 2010, en sóttvarnalæknir segir toppinn á síðasta ári ekki til marks um fjölgun smita. 9. ágúst 2010 13:07
Flest tilfelli af HIV í 25 ár Fjöldi tilfella nýrra HIV-greininga hefur ekki verið meiri hér á landi síðan 1985. Á síðasta ári greindust þrettán tilfelli, en árið 1985 voru þau sextán. Mælingar hófust fyrst árið 1983 og var þá einn einstaklingur sem greindist með HIV-veiruna. Kemur þetta fram í skýrslu Landlæknisembættisins. 9. ágúst 2010 05:00