Innlent

Ekki til marks um fjölgun smita

Haraldur Briem.
Haraldur Briem. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Á síðasta ári greindust 13 manns með HIV veiruna, en ekki hafa fleiri greinst á einu ári síðan 1985 þegar 16 greindust. Ekki stefnir í fjölgun smita það sem af er árinu 2010, en sóttvarnalæknir segir toppinn á síðasta ári ekki til marks um fjölgun smita.

Það sem af er á árinu 2010 hafa fimm greinst með HIV veiruna. Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, segir að heilt á litið bendi tölurnar ekki  til þess að smitum sé að fjölga marktækt og raunar sé um að ræða lítilsháttar fækkun miðað við höfðatölu á síðasta ári frá árinu 2007, en þá greindust einnig þrettán með sjúkdóminn.

„Ég myndi meta þetta sem svo að þetta væri býsna stöðugt. Það sem skýrir frekar háar tölur bæði 2007 og 2009 er að þá greindust óvenjumargir sem að misnotuðu fíkniefni með sprautum og nálum. Það er auðvitað í sjálfu sér áhyggjuefni en að öðru leyti myndi ég segja að þetta væri mjög svipað frá ári til árs,“ segir Haraldur.

Í hópnum sem greindist í fyrra voru um fimm smit sem rekja má til fíkniefnaneyslu með sprautunálum. Enginn hinna smituðu fengu sjúkdóminn eftir mök við eigið kyn. Fyrstu árin eftir að mælingar hófust árið 1983 voru samkynhneigðir karlmenn í meirihluta smitaðra og eru raunar um 43% þeirra sem greinst hafa frá upphafi, en hlutur þeirra fer minnkandi.

Í farsóttatíðindum er greint frá því að átta hinna smituðu hafi verið af erlendu bergi brotin og smitast vegna kynmaka.

„Þannig hefur þetta verið í gegnum tíðina að fólk sem er að flytjast til landsins frá svæðum þar sem HIV-smit er mjög útbreitt. Við finnum þetta hjá þeim í einhverju hlutfalli og það skýrir þessar tölur líka. Meðal innfæddra Íslendinga er þetta sem betur fer frekar fátítt,“ segir Haraldur.

Tengdar fréttir

Flest tilfelli af HIV í 25 ár

Fjöldi tilfella nýrra HIV-greininga hefur ekki verið meiri hér á landi síðan 1985. Á síðasta ári greindust þrettán tilfelli, en árið 1985 voru þau sextán. Mælingar hófust fyrst árið 1983 og var þá einn einstaklingur sem greindist með HIV-veiruna. Kemur þetta fram í skýrslu Landlæknisembættisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×