Stúlkan þarf hjálp Karen Kjartansdóttir skrifar 10. mars 2010 18:53
Bandarískur læknir sem annast hefur íslenska telpu sem glímir við alvarleg veikindi undrast að íslenskir læknar hafi ákveðið að kæra foreldra stúlkunnar til barnaverndaryfirvalda fyrir að vilja fara með hana í uppskurð á heila. Aðgerðin sé nauðsynleg. Systurnar Gabríella og Anika Árnadætur þjást af sjaldgæfu heilkenni sem nefnist Golden har. Einkenni þess eru mjög flókin og margvísleg en meðal annars geta eyru verið vansköpuð, misvöxtur orðið í beinum, tengingar tauga við heila verið óeðlilegar svo fátt eitt sé nefnt. Í heila Gabríellu er blaðra sem doktor David Coulter læknaprófessor við Harvard, sem annast hefur telpuna á Barnaspítalanum í Boston, segir þurfa að skera í burtu ef hún eigi að geta náð framförum í námi og til að draga úr höfuðverkjum hjá henni. Coulter hefur ýtt á eftir aðgerðinni í talsverðan tíma en íslenskir kollegar hans eru honum ósammála. Fyrir skömmu vísuðu þeir málinu svo til barnaverndaryfirvalda þar sem þeir telja að með aðgerðinni séu óþarfa þjáningar kallaðar yfir barnið. Samkvæmt heimildum fréttastofu gruna þeir móðurina um að hafa svokallað Münchausenheilkenni, sem stundum birtist þannig foreldrar gera börnum sínum upp veikindi. Doktor Coulter segir það hvorki sitt mat né annarra sérfræðinga á taugadeildinni í Boston, sem kannað hafa ástand Gabríellu, að móðir hennar sé að blekkja þá eða ýkja ástand stúlkunnar. Hann hafi fylgst með telpunni í tvö og hálft ár og telji sig þekkja hana og ástand hennar vel. Hvorki forsvarsmenn Landspítalans né Landlæknisembættisins vilja tjá sig um málið.
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Fleiri fréttir Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Sjá meira