Dregur úr bókunum með Icelandair vegna verkfallsins 10. mars 2010 09:57 Birkir Hólm Guðnason. Mynd/GVA
Verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra eru þegar farnar að draga úr bókunum með Icelandair frá landinu, og erlendir ferðamenn, sem eiga bókað til landsins eru sumir orðnir tvístígandi, að sögn Birkis Hólm Guðnasonar, forstjóra Icelandair. Hann segir að verkfallinu sé beint gegn flugfélaginu. Fjögurra klukkustunda verkfall flugumferðarstjóranna hófst klukkan sjö í morgun þar sem ekki náðist samkomulag í launadeilu þeirra við Flugstoðir í gær. Fimm millilandaflugvélar áttu að fara frá Keflavíkurflugvelli með um 700 farþega á þessu tímabili, og tefst brottför þeirra til klukkan ellefu. Þá tefur þetta líka 15 ferðir innanlands, þar sem 400 manns ætluðu að fljúga, og svo tefst heimkoma millilandaflugvélanna í dag. Flugumferðarstjórar hafa boðað samskonar verkföll á föstudag, mánudag, miðvikudag og þarnæsta föstudag ef ekki semst. Þannig að ljóst er að leiðakerfi Icelandair mun riðlast verulega ef ekki semst hið bráðasta. Icelandair er þó ekki aðili að deilunni því hún stendur á milli Flugstoða og flugumferðarstjóra. „Þessi vinnustöðnun er sett upp í fjórar klukkustundir í senn að morgni annan hvern dag. Það hvernig þessum aðgerðum er stillt upp miðast augljóslega við það að valda sem mestri truflun á leiðakerfi og flugi Icelandair. Þegar tafir verða, þó það sé ekki nema í fjóra klukkutíma, setur það í rauninni allt annað flug úr lagi og það tekur yfirleitt tvo sólarhringa að koma þessu í lag en þá hefst næsta verkfall," segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. Guðjón segir verkfallið hafi áhrif á þúsundir flugfarþega í dag. Haldi aðgerðir flugumferðarstjóra áfram sé ljóst að þær muni hafa áhrif á 30 þúsund farþega.
Tengdar fréttir Verkfall flugumferðarstjóra hefst Fjögurra klukkustunda verkfall flugumferðarstjóra hefst klukkan sjö, þar sem ekki náðist samkomulag í launadeilu þeirra við Flugstoðir á löngum samningafundi í gær. 10. mars 2010 06:46 Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Fleiri fréttir „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sjá meira
Verkfall flugumferðarstjóra hefst Fjögurra klukkustunda verkfall flugumferðarstjóra hefst klukkan sjö, þar sem ekki náðist samkomulag í launadeilu þeirra við Flugstoðir á löngum samningafundi í gær. 10. mars 2010 06:46