Innlent

Fundaði með sendiherrum

Þrír nýir sendiherrar afhentu Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, trúnaðarbréf sín í gær.

Forsetinn fundaði með hverjum sendiherra fyrir sig, fyrst nýjum sendiherra Makedóníu, Marija Efremova. Þá fundaði hann með Jose de Jesus Sojo Reyes, nýjum sendiherra Venesúela, og svo með nýjum sendiherra Bangladess, Imtiaz Ahmed.

Forsetinn ræddi ýmis mál við sendiherrana, svo sem er varða Nató og Evrópusambandið, samstarf á sviði orkuiðnaðar, umhverfismál, menningu og listir og fleiri mál. - óká






Fleiri fréttir

Sjá meira


×