Innlent

Nú viðurkennt vísindatímarit

Tímaritið Icelandic Agri­cultural Sciences, sem Veiðimálastofnun ásamt fleiri íslenskum stofnunum stendur að, er komið á ISI- gagnagrunninn sem er sá viðurkenndasti í heimi vísindanna. Þar með er ritið staðfest sem fyrsta flokks alþjóðlegt vísindarit.

Vísindaritið er sent á margar fræðastofnanir víða um heiminn og hafa greinar þess verið skráðar í CAB Abstracts, BIOSIS-gagnagrunninn og leitarvélina Google-Scholar. Þannig hafa greinar ritsins náð athygli erlendra fræðimanna.

- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×