Innlent

Tillaga um að hætta ESB viðræðum verði afgreidd sem fyrst

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Mörður Árnason tekur undir með Þorsteini Pálssyni. Mynd/ Valgarður.
Mörður Árnason tekur undir með Þorsteini Pálssyni. Mynd/ Valgarður.
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingar, tekur undir með Þorsteini Pálssyni sem skrifaði í Fréttablaðið í gær að Alþingi eigi að afgreiða sem fyrst þingsályktunartillögu um að hætta viðræðum við Evrópusambandið.

Mörður vill helst greiða atkvæði um tillöguna strax í lok septemberþingsins. Hann segir Alþingi eiga að greiða sem allra flest mál sem fyrir það eru lögð. Auk þess veiki efasemdir um þingmeirihluta fyrir aðildarviðræðum samningsstöðu Íslands, og því þurfi að skera úr um raunveurlegan stuðning við málið.

Mörður telur að verði samþykkt að draga aðildarumsókn Íslands til baka muni það leiða til alþingiskosninga þar sem Evrópumálin verði í kastljósi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×