Minnast fórnarlambanna - Lík forsetans flutt til Póllands 11. apríl 2010 12:00 Fjölmargir söfnuðust saman fyrir utan forsetahöllina í Varsjá til að votta Lech Kaczynski forseta landsins virðingu sína ásamt þeim 96 sem fórust í flugslysinu. Mynd/AP
Pólverjar minntust forseta síns og þeirra tuga manna sem fórust með honum í flugslysinu í Rússlandi í gær, með tveggja mínútna þögn í morgun. Kennsl hafa verið borin á lík forsetans sem líklega verður flutt til Póllands í dag. Þúsundir landsmanna stóðu kyrr á götum úti til að votta Lech Kaczynski forseta landsins virðingu sína ásamt þeim 96 sem fórust í flugslysinu sem varð nærri Smolensk í vesturhluta Rússlands í gær. Fjölmargir söfnuðust einnig saman fyrir utan forsetahöllina í Varsjá. Þá hafa þúsundir Pólverja tekið þátt í kyrrðarstundum sem haldnar hafa verið í kirkjum landsins til að minnast forsetans. Vladímir Pútín, forsætisráðherra Rússlands, hefur lýst því yfir að hann muni persónulega fylgjast með rannsókn á flugslysinu. Flest bendir til að mistök flugmanna hafi orsakað slysið. Jaroslaw Kaczynsky, tvíburabróðir forsetans, kom að slysstaðnum í gær en fréttir herma að hann sé eyðilagður maður vegna slyssins. Þeir bræður stofnuðu saman stjórnmálaflokkinn Lög og réttur eftir fall Sovétríkjanna og er hinn eftirlifandi bróðir formaður flokksins. Forsetinn hugðist bjóða sig fram að nýju til embættis forseta Póllands þegar kjörtímabili hans hefði lokið á þessu ári. Boðað verður til forsetakosninga í landinu innan tveggja mánaða samkvæmt stjórnarskrá landsins, en hún kveður á um að forseti þingsins í landinu fari með völd forseta þangað til. Lík þeirra sem létust í flugslysinu voru flutt til Moskvu höfuðborgar Rússlands seint í gær þar sem kennsl verða borin á þau. Lík forsetans hefur fundist og þegar verið borin kennsl á hann. Líkið verður væntanlega flutt til Póllands síðar í dag.
Mest lesið Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Fleiri fréttir Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Sjá meira