Lánveitingar með veði í eigin hlutabréfum verða bannaðar 14. janúar 2010 05:00 Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson ganga af fundi í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í október 2008. Í nýju frumvarpi um bankana er meðal annars lagt bann við svonefndum starfandi stjórnarformönnum en Sigurður gegndi slíku hlutverki í Kaupþingi. fréttablaðið/valli
Fjármálafyrirtæki er óheimilt að veita lán sem eru tryggð með veði í hlutabréfum eða stofnfjárbréfum útgefnum af fyrirtækinu, samkvæmt frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra til breytinga á lögum um fjármálafyrirtæki. Þá er fjármálafyrirtæki óheimilt að veita lán til stjórnarmanns, lykilstjórnanda eða þess sem á virkan eignarhlut í viðkomandi fyrirtæki nema með þröngum skilyrðum. Hvort um sig, lán til kaupa á hlutabréfum í banka með veði í bréfunum og lánveitingar til lykilstarfsfólks, hefur verið talið eiga sinn þátt í hruni bankanna haustið 2008. Fram hefur komið að bankarnir lánuðu háar fjárhæðir til kaupa á hlutabréfum í þeim sjálfum gegn veði í bréfunum. Voru það ekki síst æðstu stjórnendur bankanna sem fengu slík lán. Mál af því tagi er meðal þess sem tekið hefur verið til rannsóknar í kjölfar bankahrunsins. Þá er í frumvarpinu fjallað um hvatakerfi, kaupauka og starfslokasamninga. Verður fjármálafyrirtækjum heimilt að veita kauprétt eða kaupaukagreiðslur í samræmi við reglur sem Fjármálaeftirlitið setur. Eiga þær að taka mið af tilmælum Evrópusambandsins þar um. Þeirra helst eru að jafnvægi skuli vera milli fastra launa og bónusgreiðslna. Fresta skal greiðslu bónuss séu aðstæður í rekstri eða hagkerfinu þess eðlis. Þá skulu mælingar á frammistöðu taka til lengri tíma svo tryggt sé að tekið sé tillit til langtímaárangurs. Fjármálafyrirtæki ættu jafnframt að eiga kost á að krefjast endurgreiðslu á bónusgreiðslum ef í ljós kemur að þær hafa verið byggðar á röngum upplýsingum. Í frumvarpinu er einnig lagt bann við að í fjármálafyrirtækjum skuli vera svokallaðir starfandi stjórnarformenn. Er talið að slíkt fyrirkomulag bjóði heim hættunni á hagsmunaárekstrum enda eigi stjórnarmenn að hafa eftirlit með framkvæmdastjóra og því varhugavert að þeir hafi jafnframt með höndum verkefni sem eiga að vera í höndum framkvæmdastjóra. Formaður nefndarinnar sem samdi frumvarpið var Kjartan Gunnarsson, skrifstofustjóri í efnhags- og viðskiptaráðuneytinu, en í henni sátu auk hans fulltrúar Fjármálaeftirlitisins, Samtaka fjármálafyrirtækja og Samtaka fjárfesta. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Bílstjórinn fjórtán ára Innlent Orrustuþotur yfir Borgundarhólmi og drónar trufla flug í Noregi Erlent Fyrrverandi landgönguliði drap að minnsta kosti fjóra í Michigan Erlent „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ Innlent Adams hættir og Cuomo og Mamdani skiptast á skotum Erlent Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign Innlent Evrópusinnar héldu meirihluta í Moldóvu Erlent 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Innlent Fleiri fréttir Bílstjórinn fjórtán ára Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Allt niður í þriggja mánaða fiðluleikara „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ „Ákveðinn miski“ að geta ekki treyst vatninu Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Umfangsmiklar árásir og símengað neysluvatn Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Geirfinnsmálið, orkuöflun, gjaldeyrishöftin og íslenskan á Sprengisandi Drógu aflvana bát í land í Neskaupstað Með bílinn fullan af fíkniefnum „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Sjá meira