Bílalánin fjötra fólk sem flytur úr landi 14. janúar 2010 04:00 Fjöldi bíla hefur verið fluttur úr landi eftir að bílalánafyrirtæki hafa tekið þá yfir vegna vanskila. Fólk sem flytur úr landi hefur lent í erfiðleikum skuldi það mikið af bílunum sínum. fréttablaðið/vilhelm
Fólk sem flyst úr landi getur ekki tekið bílinn með sér hvíli á honum lán. Talsmaður neytenda talar um átthagafjötra. Viðkomandi þurfa annaðhvort að rifta samningi, með tilheyrandi afföllum, eða borga af bíl hérlendis sem þau geta ekki notað. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segist reglulega fá ábendingar vegna þessa. Bílalánafyrirtæki hafi stundum synjað sölu með tilheyrandi erfiðleikum. „Þau hafa þá bæði viljað halda kökunni og borða hana,“ segir Gísli. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir þetta töluvert vandamál. Bíllinn sé fastur hér, enda skráður á lánafyrirtækin, og oft geti verið um töluverðar fjárhæðir að ræða. „Fólk þarf þá að sæta afarkostum á riftun samnings eða hafa bílinn hér og borga af honum.“ Gísli og Runólfur eru sammála um að ekki sé nægilega komið til móts við fólk vegna bílalána. Gísli segir mikilvægt að leysa úr ágreiningi um lögmæti gengislána. Skjótari úrlausnir þurfi en héraðsdóm og best sé að skipa stjórnskipaðan og lögþvingaðan eða samningsbundinn gerðardóm. „Ráðherra segir fólki hins vegar ítrekað að fara í héraðsdóm. Það er sérkennilegt að sömu stjórnvöld og vilja ekki beina Bretum og Hollendingum í héraðsdóm vísi einstaklingum þangað. Í báðum tilvikum er um réttarágreining að ræða. Hér eru þúsundir mála sem eru, ef ekki samkynja, þá keimlík og væri hægt að leysa úr hratt og örugglega með gerðardómi.“ Runólfur segir ófært að oftar en ekki hverfi eignarmyndun út í veður og vind. Hann nefnir nýlegt dæmi þar sem eigandi sat uppi með skuld en engan bíl. „Bíllinn var verðmetinn á 1.800 þúsund, en lánið stóð í 3 milljónum. Keyrt var á bílinn á bílastæði og hann gjöreyðilagður. Eftir standa 1.200 þúsund krónur í eftirstöðvar, en enginn bíll.“ Töluverð viðskipti voru í haust með notaða bíla, að sögn Runólfs, en frost sé á innflutningi nýrra bíla. Nú sé svo komið að nýlega notaða bíla skorti. kolbeinn@frettabladid.is gísli tryggvason
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira