Reykjavíkurborg tekur að sér þjónustu við geðfatlaða 14. janúar 2010 14:41 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hafa ákveðið að Reykjavíkurborg taki að sér ábyrgð og framkvæmd á þjónustu við geðfatlaða sem Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík hefur sinnt fram til þessa. Tillaga þess efnis var samþykkt samhljóða í velferðarráði Reykjavíkur í gær. Samþykktin er í samræmi við viljayfirlýsingu sem undirrituð var af félagsmálaráðherra og borgarstjóra í lok ágúst 2008. Fram kemur í tilkynningu að frá þeim tíma hafi verið unnið þarfagreiningu og skilgreiningu samningsáherslna. Jafnframt hefur verið unnið að innleiðingu þjónustusamnings milli Reykjavíkurborgar og ráðuneytisins um uppbyggingu íbúðakjarna fyrir geðfatlaða sem undirritaður var samhliða viljayfirlýsingunni í ágúst 2008. Í samræmi við þann þjónustusamning hefur borgin undanfarna mánuði sett á fót átta íbúðakjarna fyrir geðfatlaða og verða tveir þeir síðustu teknir í notkun í þessum mánuði. Uppbygging kjarnanna og innleiðing þjónustu á þeim hefur tekist framar vonum, en áhersla er lögð á sjálfstæði og virkni einstaklinganna sem þar búa, að fram kemur í tilkynningu. Samkvæmt fyrirhuguðum samningum milli ríkis og borgar verður þjónusta við geðfatlaða í Reykjavík veitt frá einni hendi í nærumhverfi. Í tilkynningunni segir að markmiðið sé að færa þjónustuna nær notendum, út í samfélagið og stuðla þannig að virkni fólks í eigin umhverfi. Í samvinnu við geðsvið Landspítalans verði áhersla lögð á samfélagsþátttöku og að einstaklingum gefist kostur á að fá þjónustuna heim í stað þess að fá hana á stofnunum. Áhersla verður jafnframt lögð á að geðfatlaðir geti átt kost á búsetu í einstaklingsíbúðum. Þá kemur fram í tilkynningunni að yfirfærsla á þjónustu við geðfatlaða til borgarinnar sé liður í heildaryfirfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Með yfirfærslunni verður nærþjónusta við alla Reykvíkinga á einni hendi.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira