Stjórnin bíður viðbragða andstöðunnar 14. janúar 2010 05:00 Formenn stjórnmálaflokkanna hittust á mánudag ásamt Þráni Bertelssyni og Birgittu Jónsdóttur. fréttablaðið/stefán
Búist er við að formenn stjórnmálaflokkanna hittist að nýju í dag til að ræða mögulegar samningaviðræður um Icesave. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins bíða oddvitar ríkisstjórnarinnar viðbragða frá stjórnarandstöðunni. Þeim þykir standa upp á hana að lýsa yfir þeim samningsmarkmiðum sem hún vill stefna að, um hvað verði hægt að ná samstöðu í viðræðum við Breta og Hollendinga. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sögðu báðir á mánudag ótímabært að nefna samningsmarkmið. „Við höfum ekki farið út í nein smáatriði samningsins á meðan það hefur ekki einu sinni legið fyrir að stjórnin telji að það þurfi að fá nýjan samning,“ sagði Sigmundur Davíð í gærkvöld. Hann gagnrýndi ráðherra ríkisstjórnarinnar fyrir yfirlýsingar síðustu daga. „Ég hafði skilið það sem svo að menn ætluðu að sleppa öllum yfirlýsingum á meðan verið væri að finna einhverja lausn.“ Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður ekki farið í viðræður við Hollendinga og Breta nema fyrir liggi samkomulag stjórnmálaflokkanna um markmið. Þá verði tryggt að slíkur samningur haldi. Fyrr séu viðsemjendur ekki til viðræðna um nýja samninga og fyrr sé ekki ástæða fyrir ráðherra til að setjast yfir málið. Ráðherrar og embættismenn hafa þó hitt breska og hollenska kollega sína undanfarið.- kóp
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira