Hera vinnur Eurovision-keppni 12. janúar 2010 07:15 Lagið Someday hefur verið kjörið besta Eurovision-lagið sem komst ekki í lokakeppnina. réttablaðið/anton „
Þetta er bara æðislegt," segir söngkonan Hera Björk en lagið Someday sem hún söng í undankeppni dönsku Eurovision-keppninnar í fyrra, hefur verið kjörið besta Eurovision-lag síðasta árs sem komst ekki í lokakeppnina í Moskvu. Það voru aðdáendaklúbbar Eurovision úti um allan heim sem kusu lagið í efsta sæti. Keppnin nefnist Second Chance Contest og hefur verið haldin í mörg ár. Hera segir útnefninguna ekkert endilega hafa komið sér í opna skjöldu. „Ég er búin að vera tilnefnd svolítið á þessum síðum úti í heimi, þannig að ég vissi að það var mikill áhugi og lagið var mjög vinsælt. En þetta kom yndislega á óvart samt sem áður. Þetta þýðir að þeir hefðu viljað sjá mig í lokakeppninni," segir hún. Lagið endaði í öðru sæti í dönsku undankeppninni og hefði vafalítið náð langt í lokakeppninni hefði það komist áfram, enda ekta Eurovision-lag undir sterkum ABBA-áhrifum. Hera tekur þátt í undankeppni Eurovision hér heima á lokakvöldinu 23. janúar með lagið Je ne sais quoi sem er eftir hana og Örlyg Smára. Hann var einmitt einn af lagahöfundum Someday. Lagið er að sögn Heru sannkallaður epískur stuðslagari. „Ég er mjög spennt að fá að spreyta mig og flytja lagið fyrir Íslendinga og síðan eru allir þessir aðdáendaklúbbar að horfa á þetta á Netinu," segir hún og ætlar sér að sjálfsögðu sigur: „Maður er ekkert að keppa án þess að taka þetta alla leið." - fb
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Britney farin í meðferð Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira