Lífið

Barnahátíð í undirbúningi

Það tók sigurvegarann um merki Barnamenningar-hátíðar nokkurn tíma að jafna sig eftir verðlaunin en svo settist hún niður og gladdist. Fréttablaðið/Valli
Það tók sigurvegarann um merki Barnamenningar-hátíðar nokkurn tíma að jafna sig eftir verðlaunin en svo settist hún niður og gladdist. Fréttablaðið/Valli
Í gær afhenti borgarstjórinn í Reykjavík ungri stúlku verðlaun í Foldaskóla fyrir merki hátíðar sem haldin verður í borginni í apríl og helguð verður menningu krakka. Nefnist hún Barnamenningarhátíðin og verður haldin 19.-25. apríl. Eins og Hanna Birna sagði við afhendinguna þá eru tíðari hátíðir sem fullorðnir setja saman fyrir börn.

Sigurvegarinn Inga Birna Ísdal Gunnarsdóttir kunni athyglinni illa, en merkið sem hún bjó til var skærblár fugl, sannkallaður vorboði, enda ber þessa nýju hátíð upp á sumardaginn fyrsta.

Margt verður á boðstólum fyrir börnin og vandamenn þeirra á hátíðinni, ef marka má litla kynningu á henni sem lögð var fram í gær: Norræna húsið verður undirlagt, Listasmiðja með mikilli dagskrá í Listasafni Íslands, myndlistarsýning í Vesturbæjarlaug, Skákakademía í Ráðhúsinu, Esjudagur fyrir börnin og lýkur henni með lokahófi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem Gunnar Þórðarson stjórnar flutningi á efni af Vísnaplötunum sem hann setti saman ásamt fleirum fyrir rúmum aldarfjórðungi.- pbb





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.