Stórfelld misnotkun í heyrnleysingjaskólum 27. mars 2010 06:00 Benedikt páfi á Péturstorginu. Páfagarður segir fréttaflutninginn lið í rógsherferð gegn páfanum. nordicphotos/AFP
AP Tvö mál hafa komið upp með stuttu millibili um stórfellda og áralanga misnotkun kaþólskra presta á nemendum í heyrnleysingjaskólum í Bandaríkjunum og á Ítalíu. Páfagarður er sakaður um að hafa hylmt yfir brotin í báðum tilfellum. Stórblaðið New York Times greindi frá því í vikunni að árið 1996 sendi erkibiskupinn í Wisconsin bréf til Páfagarðs og tilkynnti um prest í Milwaukee, sem grunaður var um að hafa misnotað allt að 200 nemendur í heyrnleysingjaskóla á árabilinu 1950 til 1975. Erindið lenti á borði Benedikts XVI., sem þá hét Joseph Ratzinger, og var yfirmaður svonefnds trúarráðs kaþólsku kirkjunnar og hafði meðal annars umsjón með viðurlögum við agabrotum kirkjunnar þjóna. Erkibiskupinn fékk engin svör frá Ratzinger. Sjö mánuðum síðar fékk hann boð frá næstráðanda Ratzinger um að beita prestinn viðeigandi viðurlögum kirkjunnar, en gera það með leynd. Stuttu síðar var sú skipun dregin til baka þar sem presturinn var sagður hafa gert yfirbót, auk þess sem brotin væru fyrnd. Hitt málið kom fram í dagsljósið í fyrra, þegar 67 fyrrverandi nemendur í heyrnleysingjaskóla í Veróna á Ítalíu sökuðu 24 presta um áralangar nauðganir og misnotkun. Biskupinn í Veróna neitaði þessum ásökunum í fyrstu en eftir að einn prestanna játaði að hafa brotið á nemanda var efnt til innanhússrannsóknar. Þar var aftur á móti ekki rætt við nemendurna fyrrverandi en eftir að málið komst í hámæli hafa talsmenn kirkjunnar heitið að bæta úr því. Hneykslismál skekja kaþólsku kirkjuna um þessar mundir. Vika er síðan páfi bað fórnarlömb kynferðisofbeldis á Írlandi afsökunar á sinnuleysi kirkjunnar og í Þýskalandi er verið að rannsaka mál tveggja presta og tveggja nunna sem grunuð eru um að hafa beitt börn ofbeldi. Vatíkanið gagnrýndi fréttaflutning New York Times harðlega og segir hann lið í rógsherferð gegn páfanum, sem gangi út á að kenna kaþólsku kirkjunni um útbreidda meinsemd sem sé alls ekki bundin við hana. bergsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Innlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Veður Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Innlent Spá enn vaxtahækkun í maí Innlent Fleiri fréttir Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Sjá meira