Leggur milljarða í samgöngur 7. september 2010 05:00 Endurnýja á um 240 þúsund kílómetra af vegum, auk viðhalds á járnbrautakerfi og flugbrautum samkvæmt áætlun Baracks Obama Bandaríkjaforseta. Fréttablaðið/AP
Ríkisstjórn Baracks Obama ætlar að eyða um 50 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði 5.850 milljarða króna, til að endurnýja vegakerfi, járnbrautir og flugvelli. Áformunum er ætlað að hafa jákvæð áhrif á efnahagslíf landsins. Þessar gríðarlegu fjárfestingar í innviðum landsins eru hluti af aðgerðaáætlun Obama sem kynnt verður á næstunni. Talið er að forsetinn vilji koma áætluninni af stað fyrir þingkosningar í Bandaríkjunum í nóvember. Leggja á 50 milljarða Bandaríkjadala í verkefnið strax í ár, en verkefnið á að standa í sex ár. Ljóst er að frekari fjármunum verður varið til uppbyggingarinnar á næstu árum. Obama mun leita ýmissa leiða til að borga fyrir efnahagsaðgerðirnar. Eitt af því sem hann hefur til skoðunar er að taka fyrir ýmiss konar skattaafslátt sem framleiðendur olíu og gass hafa notið undanfarið. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum er nú um 9,6 prósent. Skoðanakannanir sýna að flokksbræður Obama í Demókrataflokknum standa afar illa fyrir kosningarnar í nóvember. Stjórnmálaskýrendur telja það hluta af skýringunni á því að Obama ákveði að leggja í svo kostnaðarsamar aðgerðir í efnahagsmálum. - bj
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Fleiri fréttir Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Sjá meira