Stórþjófur rændi verslanir 1. febrúar 2010 05:30 Gamla bókasafnið Maðurinn braust meðal annars í þrígang inn í Gamla bókasafnið.
Ríflega tvítugur maður hefur verið ákærður fyrir rán, fjölmörg innbrot, þjófnaði og fleiri brot. Ríkissaksóknari ákærir manninn meðal annars fyrir tvö rán. Í september síðastliðnum öskraði hann á starfsmann verslunar á Laugavegi og neyddi hann til að opna peningakassa. Þar stal maðurinn rúmum 109 þúsund krónum. Síðara ránið framdi hann í verslun í Engihjalla. Þar ógnaði hann starfsmanni með hnífi og stal 56 þúsundum úr peningakassanum. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákærir manninn fyrir fimmtán brot. Hann reif seðlaskiptikassa af vegg Landspítalans í Fossvogi og henti honum út um glugga. Þrisvar braust hann inn í Gamla bókasafnið, forvarnar- og fræðslusetur Hafnarfjarðar og stal þar meðal annars tölvum og flatskjá. Í afgreiðslu Hótels Hafnarfjarðar lét hann greipar sópa og stal fartölvu og farsíma, ásamt fleiru. Þá er maðurinn ákærður fyrir tvö innbrot, í íbúð og bílskúr þar sem hann stal rándýrum tölvu- og tækjabúnaði. Að auki stal hann fjórum bílum og er jafnframt ákærður fyrir fíkniefnaakstur og fleiri brot. Loks stal hann áttatíu sígarettupökkum úr afgreiðslu bensínstöðvar.- jss
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Innlent Fleiri fréttir Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Sjá meira