Erlent

Alvarlegt lestarslys á Spáni, 12 manns fórust

Að minnsta kosti 12 manns fórust í alvarlegu lestarslysi suður af Barcelóna á Spáni um skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi. Nokkrir aðrir eru alvarlega slasaðir.

Slysið varð á lestarstöð í smábænum Castelledefeles þegar fólk sem steig af héraðslest reyndi að stytta sér leið yfir nærliggjandi brautarteina, en gekk þá beint í veg fyrir hraðlest sem stoppar ekki á þessari lestarstöð.

Að sögn dagblaðsins El Pais eru lík hinna látnu það illa farin að erfitt verður að bera kennsl hverjir það voru, því hraðlestin ók á fullri ferð inn í hópinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×