Tekist á um Orkuveituna í borgarráði 24. júní 2010 13:37
Minnihlutinn í borgarráði Reykjavíkur mótmælir harðlega þeirri tillögu að stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur verði gerður að starfandi stjórnarformanni og verði þannig hluti af launuðu stjórnendateymi fyrirtækisins. Gangi tillagan eftir fær stjórnarformaðurinn, Haraldur Flosi Tryggvason um 920 þúsund krónur í mánaðarlaun. Tekist var á um málið á fundi borgarráðs í morgun og segja fulltrúar minnihlutans að ráðstofunin sé algjört einsdæmi og í miklu ósamræmi við það eftirlitshlutverk sem stjórnarformanni beri að sinna gagnvart stjórnendum fyrirtækisins, auk þess hlutverks sem hann hefur í stjórn fyrirtækisins. „Það vekur einnig furðu að á tímum hagræðingar og sparnaðar, skuli meirihlutinn ákveða að bæta við manni í annars fjölmenna yfirstjórn Orkuveitunnar sem fær þá greitt kr. 920.000,- mánaðarlega," segir í bókun minnihlutans. „Þessi ákvörðun er í mikilli andstöðu við fyrri stefnumörkun og þá viðleitni hjá Reykjavíkurborg að lækka launa- og stjórnenda-kostnað. Einnig benda fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna á þá lagalegu óvissu sem ríkir um slíka tillögu, enda hafa lög verið samþykkt á Alþingi sem heimila ekki að stjórnarformenn taki að sér önnur störf fyrir félagið." Farið á svig við anda laga Minnihlutinn bókaði þá að nýju og benti á að fulltrúum Samfylkingar og Besta flokksins sé tamt að tala um þriggja manna teymi með sérstakri áherslu á stjórnarformanninn. „Hið rétta er að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur er fjölskipað stjórnvald þar sem sex einstaklingar eiga sæti. Hvernig sem hið nýtilkomna fulla starf stjórnarformannsins er skilgreint, er ljóst að þar er verið að fara á svig við anda nýsamþykktra laga sem eiga að aðgreina hlutverk stjórnar og framkvæmdastjórnar." Þá bendir minnihlutinn á að ekki hafi verið tilgreint hversu lengi þessi ráðstöfun eigi að vara og vandséð sé að ákvörðunin verði dregin til baka í náinni framtíð. Áfram gengu bókanirnar og þvertók meirihlutinn fyrir að verið væri að brjóta hlutafélagalög sem minnihlutinn vísaði til og kveða á um að stjórnarformanni sé óheimilt að taka að sér önnur störf fyrir félagið en þau sem teljast eðlilegur hluti starfa hans sem formanns félagsstjórnar. „Um það er ekki að ræða í þessu tilviki heldur þvert á móti, að stjórnarformanni verði gert kleift að sinna starfsskyldum sínum sem stjórnarformanns í fullu starfi, tímabundið. Annað er útúrsnúningur," segir í bókun meirihlutans.
Tengdar fréttir Vilja starfandi stjórnarformann Nýr meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík mun leggja til að Haraldur Flosi Tryggvason verði starfandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR), samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Það þýðir að hann mun gegna formennsku í fullu starfi á hærri launum en fyrrum formenn. 24. júní 2010 06:30 Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Erlent „Ég er skrímsli“ Innlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira
Vilja starfandi stjórnarformann Nýr meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík mun leggja til að Haraldur Flosi Tryggvason verði starfandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR), samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Það þýðir að hann mun gegna formennsku í fullu starfi á hærri launum en fyrrum formenn. 24. júní 2010 06:30